Mikil taugaspenna hefur verið um borð í bátnum sem fylgir Benedikt Hjartarsyni á Ermarsundi en nú er hún farin að dvína þar sem stýrimaðurinn Gary og Stefán Karl eru komnir um borð í litla bátinn til að fylgja Benedikt í land og taka hann svo til baka um borð í fylgdarbátinn.
Gréta Ingþórs segir að um tíma hafi staðan verið krítísk og verulegar áhyggjur um borð í bátnum þegar í ljós hafi komið að Benedikt hafi misst af höfðanum þar sem yfirleitt er komið í land. Straumurinn þar fyrir utan hafi verið mikill og erfiður en skipstjórinn hafi gripið til sinna ráða, látið hann synda alllengi alllangt frá landi, um tvo kílómetra frá landi, þar til hann kom að lítilli vík fyrir austan höfðann. Þar segir Gréta að séu víst minni straumáhrif og þar hafi skipstjórinn ákveðið að taka Benna að landi.
"Nú erum við stopp á stóra bátnum og litli báturinn er að fylgja honum síðasta spölinn. Við erum hér í myrkri í bókstaflegri merkingu þar til þeir koma aftur og það gæti kannski tekið hálftíma. Það er enginn mótor á tuðrunni, Benedikt syndir í land og litli báturinn fylgir honum og svo koma þeir saman á litla bátnum til baka," segir hún.
"Við erum þúsund metra frá landi og maður rétt sér grilla í ljósin þar sem þeir eru. Þeir taka stefnuna fyrir hann af því að það eru svo mörg ljós í landi og ég veit ekki á hvað þeir stefna en stýrimaðurinn þekkir það. Við dólum á eftir þeim en förum ekki mikið nær landi," segir hún.
Samkvæmt tölunum um borð í bátnum er Benedikt búinn að synda tæpa 60 kílómetra og hann verður búinn að synda í um 16 klukkustundir þegar hann nær landi.
5 ummæli:
60 kílómetrar! Þetta er alveg magnað.
Anna og Frímann
Ótrúlegur þessi Benedikt...alveg ótrúlegur. Er alveg að tapa mér hérna...klarðau svo þetta gó gó gó
jæja jæja,,,
Hverjir eru flestir, hverjir eru flestir
það eru Sh sundgarpar
Hverhjir eru bestir, hverjir eru mestir
Það eru garpaBlikarnir!!!
Þorgeir
Benni
Þú færð súkkulaðiköku þegar þú kemur heim. Flýttu þér
Siggi Har
mjog ahugavert, takk
Skrifa ummæli