miðvikudagur, 16. júlí 2008

Undirbùningur

Nú er unnið hratt í að undirbúa brottför. Það er verið að blanda Maxim drykki úr soðnu vatni sem öll herbergi voru samtaka í að sjóða.

Á meðan er verið smyrja Benna með sólarvörn.

Aðstoðarmenn Benedikts eru:

Ingþór Bjarnason, fararstjóri og sálfræðingur. Sér um matargjafir og fararstjórn.

Stefán Karl Sævarsson, aðstoðarsundmaður og þjálfari. Sér einnig um tæknimálin um borð.

Ásgeir "Járnkall" Elíasson aðstoðarsundmaður.

Einnig er um borð bróðir Benedikts, Gísli Hjartarson, og kona hans, Gréta Ingþórsdóttir. Gréta verður fjölmiðlafulltrúi um borð í bátnum.

Engin ummæli: