Þrátt fyrir hrakfarir morgunsins og vikubið eftir Ermarsundi hefur stemmningin aldrei verið betri hjá landsliðinu í sjósundi. Tekinn var stöðufundur eftir sjóförina í morgun og nú er ljóst að boðsundsveitin mun synda á sunnudaginn ef veður og sjólag leyfir. Einn okkar öflugasti og reyndasti sjósundmaður, Kristinn Magnússon, getur því miður ekki verið með vegna anna heima við. Við erum því sjö eftir sem ætlum að klára þetta fram og til baka.Benedikt hefur verið önnum kafinn við að svara fjölmiðlum og fjölskyldumeðlimum. Hann er ótrúlega hress eftir 60 km sund og 16 klst. í sjónum.
Eftirfarandi fréttatilkynning var send fjölmiðlum í dag:
Boðsundsveitin í sjósundi hefur framlengt dvöl sína í Dover í Englandi fram á mánudag og ætlar að gera nýja tilraun til að synda boðsund yfir Ermarsund á laugardag eða sunnudag. Boðsundsveitin átti að leggja í hann í morgun þó að veðurútlit væri slæmt. Sveitin fór út með fylgdarbátnum til að meta aðstæður og þá vildi ekki betur til en svo að gírkassinn í bátnum bilaði og varð að draga hann í land. Á Ermarsundi var bræla og aðstæður slæmar. Sami skipstjóri, Andy King, ætlar að fylgja boðsundsveitinni yfir Ermarsund en hann fór yfir með Benedikt Hjartarsyni í gær. Hrafnkell Marinósson, einn af sundmönnunum, segir að hann sé einstaklega þægilegur og góður skipstjóri og hann leyfi þeim að skjótast fram fyrir þá næstu sem eiga sundrétt. Hann ætli að leigja bát til að fylgja þeim yfir á laugardag eða sunnudag en þá er spáin góð.
Fleiri fréttir og myndir koma seinna í kvöld.
1 ummæli:
Frábært að heyra!!!
Skrifa ummæli