
Kalli og Ingþór gáfu Benna næringu og munnskol rétt í þessu. Ásgeir er með honum úti í og hann segir að sjórinn sé 17,8 gráður.
Reglunar eru mjög strangar fyrir Ermarsund. Fylgdarsundmenn mega til dæmis ekki synda fram fyrir sundmanninn né snerta hann. Fyrstu tvær klukkustundirnar mega þeir ekki fara út í, síðan mega þeir synda með aðra hverja klukkustund. Það eru tveir um borð sem fylgjast grannt með að öllu reglum sé framfylgt. Við minnsta frávik verður sundið ógilt.
Til gamans má geta þess að fleiri hafa klifið Everest-tind og farið út í geiminn en hafa synt yfir Ermarsund!
3 ummæli:
það er eins gott að passa sig. Þetta regluverk er farið að minna mann á GMP :) kv. Svenni Jons
Það er langt frá því að vera rétt hjá ykkur að fleiri hafi farið út í geim en hafa synt yfir Ermarsund því samkvæmt opinberum tölum hafa 1367 manns synt yfir Ermarsundið en aðeins 487 manns farið út í geim. Hvað Everest fullyrðinguna varðar þá stenst hún enda hafa rúmlega 1400 manns farið upp Everest fjall en ólíkt Ermarsundinu er ekkert opinbert bókhald yfir það hversu margir fara þangað upp.
Það er oft gaman að vera stóryrður en stundum þurfa menn að passa sig, sérstaklega þegar þeir óska eftir styrkjum frá almenningi.
heimildir:
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_astronauts_by_name
http://www.wisegeek.com/how-many-people-have-climbed-mount-everest.htm
http://home.btconnect.com/critchlow/Channel%20Swim%20Database.xls
http://home.btconnect.com/critchlow/ChannelSwimDatabase.htm
Mér finnst nú samt alltaf skemmtilegast þegar menn skrifa undir nafni :)
Bibba
Skrifa ummæli