Æfingin í dag var tileinkuð minningu Jóns Otta. Jón Otti var um árabil ein helsta driffjöðurin í íslensku sjósundi og hefur nokkrum meðlimum sjósundsveitarinnar hlotnast sá heiður að synda með honum. Sjósundfélag Lögreglunnar stóð fyrir minningarsundi um Jón Otta í dag þar sem synt var frá Viðey og inn í Sundahöfn.
1 ummæli:
Vona að leiðindaveðrið hjá okkur skili ykkur góðu veðri. Búin að dreifa upplýsingum um heimasíðuna um allt, gaman ef síðan er lifandi
kv Hlín
Skrifa ummæli