
Benni er búinn að synda 35 km á 10 tímum og hefur verið að auka hraðann undanfarið. Nú eru 10 km í land í beinni línu.
Benni lenti í þarabreiðu áðan en synti í gegnum hana eins og ekkert væri.
Stefán Karl fór út í áðan til að synda med honum en Benni lét það trufla sig og rak hann upp úr aftur!
Á myndinni hér fyrir neðan má sjá sirka staðsetningu sunds.
3 ummæli:
Við fylgjumst vel með á hinum bakkanum.
Hip, hip, Benni.
Greipur, Silja og Lauga
Halló Greipur, Silja og Lauga!
Við þykjumst sjá ykkur.....
Hrafnhildur og Kristrún!
Mamma sundkappans segir honum að drífa sig heim í mat!!
Skrifa ummæli