Benedikt á spjalli við sundmenn.
Eftir sundsprettinn varið farið á fund með skipstjóra bátsins, Andy King. Andy virðist vera mjög metnaðarfullur og góður skipstjóri og fór vel á með honum og strákunum. Hann var þegar búinn að redda straumbreyti til að tryggja rafmagn fyrir Nokia N95 símana okkur sem leika lykilhlutverk í að hægt sé að fylgjast með sundunum í texta, myndum og síðan ekki síst GPS staðsetningu sundsins. Hann sýndi einnig strákunum sundáætlunina og er hún allt öðruvísi en hjá skipstjóranum hjá hinu félaginu í fyrra en það eru tvö félög sem fylgja sundmönnum yfir Ermarsundið. Þess má geta að við erum hjá upprunalega félaginu Channel Swimming Association .
Fylgdarbáturinn okkar.
Boðsundssveitin kom til Dover í dag og það urðu fagnaðarfundir. Næstu daga munum við æfa vel og nota tíma til að undirbúa okkur enn betur.
Fyrir þá sem vilja nákvæmar veður og vindaspár næstu daga í Ermarsundinu þá er samansafn af slóðum hér til hægri á spássíðunni.
1 ummæli:
Hæ Benni og co!
Við munum fylgjast grannt með ykkur hérna á ströndinni. Og muniði að við látum loga á kertinu okkar til að gefa ykkur hita og kraft í sjónum þegar þið farið yfir!
Ykkar,
Strandverðir.
Skrifa ummæli