
Á meðan Benedikt tekst á við Ermarsundið hvílir boðsundsveitin sig og undirbýr sig fyrir sundið á morgun. Boðsundsveitin ætlar sér fram og til baka.
Búið er að ákveða röð boðsundsveitarinnar fyrir morgundaginn:
Boðsundsveitinn byrjaði daginn á að kveðja Benedikt og aðstoðarmenn niðri á höfn. Því næst fóru þau út á Shakespeare Beach og horfðu á Benna taka fyrstu sundtökin.
Kristinn og Björn hittu mjög þekktan sjúkraþjálfara Stanley Paris niðri fjöru í Dover. Hann ætlar sér að verða elsti sundmaður sem hefur synt yfir Ermarsundið. Hann er nú þegar búinn að synda tvisvar sinnum yfir. Einnig hefur hann komið sex sinnum til Íslands til að halda fyrirlestra í sjúkraþjálfun.
Búið er að ákveða röð boðsundsveitarinnar fyrir morgundaginn:1. Heimir Örn Sveinsson
2. Hálfdán Freyr Örnólfsson
3. Kristinn Magnússon
3. Kristinn Magnússon
4. Fylkir Þ. Sævarsson
5. Björn Ásgeir Guðmundsson
6. Hrafnkell Marínósson
7. Birna Jóhanna Ólafsdóttir
8. Hilmar Hreinsson
Vegna vandræði með GPRS samband/Nokia Sports Tracker er Síminn að kippa þessu í lag fyrir morgundaginn.
1 ummæli:
Gangi ykkur vel á morgun, við hérna fyrir austan munum fylgjast með ;)
kv, Dagný Hrund (systir Dána)
Skrifa ummæli