laugardagur, 19. júlí 2008

Mótlæti er til að sigrast á

Þrátt fyrir langa og stranga bið eftir sundi, bilaðan mótor í bát, brælu, vondar veðurspár og núna síðast annað brotthvarf úr sveitinni, hefur stemningin aldrei verið betri. Fylkir þurfti frá að hverfa vegna fjölskylduaðstæðna. Nú erum við orðin ,,sexý sveit’’ og erum staðráðin í að klára þetta verkefni sem mikið hefur verið lagt í.

Við erum búin að koma okkur fyrir á nýja staðnum okkar, Varne Rigde sem er staðsettur við klettana á milli Dover og Folkestone. Þar höfum fengið höfðinglegar móttökur hjá þeim David og Evelyn. Þau gera út á að taka á móti Ermarsundsmönnum og hafa frætt okkur mikið um Ermarsundið . T.d. hafa þau sagt okkur sögu frá fátækum manni sem hefur 4 sinnum þurft frá að hverfa vegna veðurs þ.a.s aldrei fengið að dýfa sér Ermina til að synda. Hvert skipti kostar hann 10.000 pund þar sem hann kemur frá Ástralíu. David sagði að hann væri haldinn Channel Fever. Í gærkvöldi horfðum við á mjög forvitnilega mynd um þýskan sundkappa að nafni Christof Wandratsch sem reyndi við heimsmetið yfir Ermarsundið fyrir nokkrum árum síðan. Hann synnti 35 km (bein lína er 32 km) var 2 mín frá metinu ! Myndin sýndi einnig vonir og vonbrigði sundmanna við að reyna synda Ermarsundið.

Kíkt til veðurs
Spáin hefur versnað fyrir sunnudaginn en við heyrum í skipstjóranum í hádeginu. Þá vitum við stöðuna. Við erum vön að synda í alls konar veðri og sjólagi heima og okkur finnst vond veður hér vera ágætis sumarveður heima. En það verður taka tillit til þess að skipstjórinn ræður ferðinni og þótt sjólag líti ágætlega út héðan frá Dover þá getur verið bræla á miðju Ermarsundinu og þar sem við ætlum okkur fram og til baka þarf að horfa til 24 klst. fram í tímann.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

áfram með jákvæða hugarfarið!!!!!
bíð spennt !!!

Nafnlaus sagði...

Áfram sexý!! Gefist ekkert upp þótt á móti blási. Jákvætt hugarfar er það sem þarf:)

kv. Kalli og Sigrún

Nafnlaus sagði...

-
Frábær klippingin á Benna,alveg mátulega sítt.
Óska boðsundsveitinni góðs gengis og fylgist spennt með ykkur
Ella eiginkona Benna

Nafnlaus sagði...

Kæra boðsundsveit.

Við fylgjumst spennt með afrekum ykkar héðan úr sólinni á Ylströndinni í Nauthólsvík.

Baráttukveðjur frá Strandvörðunum.