Benedikt Hjartarson er nú búinn að synda 43 kílómetra og bein lína í land er sjö kílómetrar. Hann syndir nú á 3,8 kílómetra meðalhraða sem er mjög gott og hraðar en hann hefur verið að synda á í dag, að sögn Grétu Ingþórsdóttur, sem er um borð í fylgdarbátnum.
Gréta segir að Benedikt sé kominn ótrúlega nærri landi, svo nærri að þau hafi verið "farin að telja húsin." Hún segir að mistur sé komið yfir og senn fari að rökkva en ekki sé enn komið myrkur.
Benedikt hafi verið að skipta um gleraugu og fengið þá um leið band með litlum ljósstautum til að setja á sig og einnig til að festa í teygjuna á sundgleraugunum. Hún hafi reynt að taka mynd af því en sé ekki viss um að það skili sér.
Gréta segir að fínt hljóð sé í Benedikt og liðinu um borð í bátnum. Benedikt haldi sínu striki og sundið gangi mjög vel þó erfitt sé í öldunum. Ef allt gangi eftir eigi Benedikt að ná í land í Frakklandi einhvern tímann í kvöld.
12 ummæli:
Gaman að fylgjast með, þið eruð ótrúlega dugleg að setja inn fréttir og myndir. Krossa fingur og fylgist spennt með málum.
kv Hlín
Go go go. Þetta er alveg að hafast!!
Frábært afrek þú er sannur Víkingur Benedikt
Vonandi tekst þetta, baráttu kveðu.
Frá mömmu
Heimis Arnars
Heimir Örn og sundkappar allir Baráttu kveðjur
koma svo Benni,... Þú ferð létt með þetta
Sæl,
Mér hefur ekkert orðið úr verki í dag. Þetta frábæra afrek, sem það þegar er orðið, hefur haldið mér spenntum við skjáinn.
Ég er svolítið óhress með að það koma ekki GPS staðsetningar hér inn. Ég fer að halda að Ingþór sé sjóveikur....(-:
Mér finnst upplýsingar vera nokkuð misvísandi. Sjálfvirka kortið gefur til kynna að það sé næstum hálf leiðin eftir.
Þið talið um að bein lína í land sé 7 km. Það eina sem gildir er að fá lengd og breidd á forminu 00°00" Það þarf að stilla tækið til að það sýni þannig format. Það er ekkert mál.
kv
Villi.
Sjósundlandsliðsfélag Breiðabliks er á fundi á nýja pallinum hennar Helgu í Hófgerði. Við fylgjumst spennt með hvernig gengur hjá ykkur
Þorgeir fyrir hönd hópsins.
Skál!
Já núna er spennan algerlega að fara með mann:-)
Áfram Benedikt, þú neglir þetta.
ÁJ
Ótrúlegur árangur.......Benni þetta er nánast komið hjá þér.
Við fylgjumst spennt með og hugsum til þín .
Kveðja
Gerða,Addi og Villi.
Áfram Benni !!!!
Farin á pallinn hjá Helgu þar sem stemmingin er sjálfsagt eins og á landsleik þar sem Ísland er einu marki yfir ;)
Bibba
Þetta líst mér vel á. Haltu bara áfram þar til þú botnar.
Áfram Benni....áfram Benni....
Heyrði í Birnu og Heimi áðan.
Þau eru að farast úr spenningi á hótelinu...
Næstu fréttir verða góðar lofaði Hilmar...
kveðja
Villi.
flott hjá þér og þú getur þetta áfram svo:):)k.v stuðningsmaður að norðan:)
Skrifa ummæli