sunnudagur, 20. júlí 2008

Þessu er lokið að sinni

Við erum runnin út á tíma gagnvart sundrétti okkar og veðurfari. Við héldum góðan fund með Andy King skipstjóra í kvöld. Miðað við sjólag og veðurfar næsta sólarhringinn þá erum við ekki að fara fyrr en seint á mánudaginn eða á þriðjudaginn í fyrsta lagi. Sundréttur okkar rann út laugardaginn 18. júlí en vegna viðleitni Andy´s við að aðstoða okkur, hliðraði hann réttinum okkar til aðfaranóttar mánudags. Við héldum í vonina að geta samið um að fara á mánudeginum en það gengur ekki upp.

Þessi orusta er töpuð en stríðið er ekki búið. Við töpuðum henni vegna þess að við komust aldrei sjálf í orustuna. Við ráðum ekki við bilaða vél, sjólag og veðurfar.

Verkefni landsliðsins í sjósundi hefur náð sínum tilgangi og gott betur þrátt fyrir að boðsundsveitin hafi ekki komist af stað. Benni hefur með sínu frábæra íþróttaafreki vakið gríðarlega mikla athygli á sjósundi. Hann er kyndilberi sjósunds á Íslandi.

Við höfum rutt brautina fyrir aðra íslenska sjósundmenn og boðsundsveitir til að reyna við Ermarsundið. Við erum reynslunni ríkari gagnvart reglukerfinu, veðurfari, sundréttunum og hefðum Ermarsundsins og síðan ekki síst biðinni sem tekur á. Það á eftir að koma sér vel í framtíðinni.

Það er frábært að sjá öll þessi jákvæðu stuðnings skilaboð á síðunni.

Kær kveðja til fjölskyldna, vina og styrktaraðila. Takk fyrir stuðninginn.

12 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er leitt að heyra.
Þið takið þá bara Akranes eða Vestmannaeyjar í staðinn.
Ég skal vera ykkar Andy King...þó vonandi ekki með bilaða vél..

Sjáumst á morgun.

Kveðja
Villi.

Nafnlaus sagði...

Ég trúi þessu bara ekki. Ekki eina einustu mínútu datt mér í hug að þetta gæti orðið niðurstaðan. Mér finnst þetta jafnast á við tapið mitt við Ermina í fyrra. Svo mikið er víst að þið áttuð það ekki skiliðað að svona fór. Góðir félagar góðar fyrirmyndir. Ég hlakka til að sjá ykkur heima.
Benedikt Hj

Nafnlaus sagði...

Ohhh.. mikið ofsalega er leiðinlegt að heyra þetta. En ég er fullviss um að þetta verði ekki seinasta tilraunin hjá ykkur!

Gangi ykkur vel næst :D

Nafnlaus sagði...

Æji leiðinlegt;( en þið syndið bara annað í staðinn;) ef ég þekki bróðir minn rétt þá er hann ekki hættur að synda í sjónum;)
Með bestu kveðju og von um gott ferðalag heim
kv, Dagný Hrund Örnólfsd

Nafnlaus sagði...

Sæl verið þið.
Svona eru náttúruöflin, við ráðum þeim ekki. Þakka fyrir frábæra spennu og innsýn í góðan liðsanda. Þið getið komið stolt heim þrátt fyrir þessa niðurstöðu. Það er manni enn frekar ljóst hve mikið afrek Benedikt hefur unnið. Enn og aftur til hamingju Benedikt.
Kveðja
Stefanía, hjá Actavis.

Nafnlaus sagði...

Einn vinur minn sagði sem er í fjallageiranum, þetta er bara eins, maður stefnir á fjall en náttúrann tekur völdinn og maður dúsir í einhverjum fjallabúðum lon og don og arkar svo niður og stefnir á sama fjall seinna. En gengur á önnur fjöll þangað til.

Nafnlaus sagði...

Leitt að þið gátuð ekki reynt við sundið en það sýnir bara að það er ekki sjálfsagt mál að komast yfir Ermarsund. - Engu að síður hefur ykkur líklega tekist að gera sjósund Íslendinga að spennandi íþrótt en ekki bara að sérstöku uppátæki einstakra manna:) Takk fyrir að leyfa okkur öllum að fylgjast með ykkur og með Benna, með góðum og lifandi vefsíðum.

Þorgeir, sundgarpur í Kópavogslaug

Nafnlaus sagði...

Kæru stuðningsmenn

Við á Ylströndinni í Nauthólsvík ætlum að fagna Benna sundgarpa í dag mánudag 21. júlí kl. 17. Tilefnið er að fagna þeim merka áfanga sem Benni náði þegar hann synti yfir Ermarsundið. Við munum bjóða uppá kaffi og Vínarbrauð.

Kær kveðja, starfsfólk Ylstrandar og Siglunes.

Nafnlaus sagði...

Ofsalega er leiðinlegt að heyra að þið getið ekki reynt að synda yfir. Þið gerið bara eins og pabbi og takið þetta í annarri tilraun! :)

Nafnlaus sagði...

Æji, þetta var leitt. En þið takið þetta næst.Þá verður virkilega samið við náttúruna og veðurguði.

Kveðja Gerða

Nafnlaus sagði...

Benni er einfaldlega Kóngurinn í Sjósundinu !!!!

Sjáumst í kaffinu á eftir.

Nafnlaus sagði...

:S Súrt að þetta skyldi fara svona en þið takið þetta bara að ári. kv. Svenni Jons.