
Benedikt Hjartarson var "ótrúlega hress," eins og Gréta Ingþórsdóttir orðaði það áðan, þegar við hringdum í hana. Sjálfur sagði hann að hann væri allur að koma til, hann væri bara "eins og dauðadrukkinn maður því að ég er með svo mikla sjóriðu."
Benedikt rifjaði upp að hann hefði misst af höfðanum þar sem hann ætlaði að taka land og það hefði lengt sundið um rúmar tvær klukkustundir. "Þetta hafðist en það var rosalega erfitt. Ég var tilbúinn að hætta síðustu sjö klukkustundirnar en skipstjórinn var svo harður að hann leyfði mér það ekki," sagði Benedikt þegar hann var nýkominn um borð í bátinn.
Hann sagðist líka vera ofsalega montinn og ánægður með afrekið og líka ánægður með allt fólkið heima sem hefði staðið með sér og hjálpað sér.
- Hvað tekur nú við?
"Ég hvíli mig til morguns og fer svo til White Horse í Dover, þar skrifa allir, sem hafa synt yfir Ermarsundið, nafnið sitt á vegg. Svo ætla ég bara að fylgjast með boðsundsveitinni á morgun að fara af stað og meika það," svaraði hann og kvaðst myndu hvíla sig en þó ekki sofna í bráðina, til þess væri hann alltof upptjúnaður.
14 ummæli:
Góða nótt Benni, láttu sjóriðuna vagga þér í svefn.
Við kveðjum í bili, hittumst heima.
Palli og Ingunn
Góða nótt Benni, láttu mig vita hvenær þú ætlar næst :) Þetta var rosalega gaman, takk!
Raggi
Er hægt að fá mynd á síðuna af kappanum?
Hva????? ætlarðu ekki að synda með sveitinni á morgun? þú ert sá eini sem þekkir leiðina!
Innilega til hamingju með frábæran árangur Benni!
Kv
Sigrún og Heimisdóttir
Til hamingju með þetta frábæra íþrótta afrek Benni þú varst svo sannarlega búinn að vinna fyrir því :-)
Kv/Gunni SD
Frábært afrek. Til hamingju með þetta. Þú ert Íslendingum til sóma.
Kveðjur frá klakanum.
Til hamingju Benni minn.
Til hamingju frábært afrek !
kveðja úr Grindavík
Til hamingju Benni ég vissi að þú gætir þetta
Kveðja
Big mama
frá Stjörnunni
Til hamingju með þennan glæsilega árangur! Kveðja frá yngsta garpafélaganum Önnu Guðnýju.
Til hamingju með þennan glæsilega árangur! Kveðja frá yngsta garpafélaganum Önnu Guðnýju.
Þú er mesti sjósundmaður Íslendinga fyrr og síðar.
Þetta afrek jafnast á við að keppa á Ólympíuleikum.
Hvað verður eiginlega næst á dagskránni hjá þér?
kv.
Steinn
Hjartanlega til hamingju með Ermasundið, þú varst auðvitað forsíðufrétt Morgunblaðsins, yndislegt að þú komst yfir. Þetta verður skráð á spjöld sögunnar kveðja Hildur
Skrifa ummæli