mánudagur, 14. júlí 2008

Kapteinn King og Indversku stelpurnar í 3m ölduhæð

Eftir viðtal við skipstjórann okkar, Andy King, er ljóst að ólíklegt er að við förum á morgun (þriðjudag). Veðurspáin (Sýnir km/h. deilið með 3,6 til að fá metra á sek.) fyrir morgundaginn er slæm, búist er við óhagstæðum og miklum vindi. Hins vegar er spáin mun betri fyrir miðvikudaginn og fimmtudaginn. Skipstjórinn er bjartsýnn á að Benedikt geti lagt af stað snemma morguns á miðvikudag. Boðsundsveitin færi af stað á fimmtudaginn.

Kristinn sundmaður og Ingþór fararstjóri spjalla við Andy King.

Indversku konurnar lentu í þriggja metra ölduhæð og voru orðnar hraknar af sjóveiki. Konurnar eru mæðgur og frænka og ákvað móðirin meðal annars að hætta vegna þess að hún gat ekki einbeitt sér að sundinu vitandi af stúlkunum fárveikum um borð. Þetta segir okkur að sund í Ermarsundinu er mjög háð veðri og vindum. Við verðum að vera tilbúin í hvað sem er og við erum það. Benedikt, Ásgeir, Björn, Dáni og Stefán Karl með Indversku stelpunum eftir sundið í dag.
Aðstæður um borð í bátnum eru þannig að allir verða að vera úti. Káetan er lítil og þröng og nýtist nánast eingöngu í að ná hita í sundmanninn sem kemur úr sjónum. Við getum til dæmis ekki haft Ingþór fararstjóra með þegar boðsundsveitin syndir vegna þrengslanna um borð.

Ingþór, Hrafnkell, Björn, Hálfdán, Stefán og Benedikt skoða aðstæður um borð.

Komnar eru myndir á myndasíðuna okkar (sjá einnig hér á hægri spássíu undir Myndasíður -> Ermarsund 2008).

Engin ummæli: