Seinustu dagarnir voru frábærir hjá þeim David og Evelyn í Varne Rigde. Þau eru orðin góðir vinir okkar og það er eins og við höfum þekkt þau í 10 ár. Við héldum grillveislu seinasta kvöldið þar sem meistara kokkurinn Bjössi sýndi snilldi sína. Þar var mikið hlegið af sögum seinustu daga og Evelyn var orðin hás af hlátri seinna um kvöldi.
Einnig kynntumst bandaríski sundkonu að nafni Rendy Lynn en hún er ein besta Open Water sundkona heimsins í dag. Hún kom í gær ásamt móður sinni og mun reyna við Ermarsundið í næstu viku. Hún á 2. sundrétt vikuna 25. júlí - 1. ágúst með sama skipstjóra og við vorum með. Hún stefnir á að synda Ermarsundið á 8 klst en heimsmet kvenna er 7 klst og 25 mín !Þökkum David og Evelyn frábærar móttökur á Varne Rigde.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli