Stundum getur verið hættulegra að vera á göngugötunni í Dover en að synda Ermarsundið. Hrafnkell og Kristinn voru að koma af kaffihúsi þegar þegar ungur maður á reiðhjóli dúndraði á Kristin. Þar sem Kristinn er heljarmenni, tveir metrar á hæð og vel yfir 100 kíló stöðvaðist reiðhjólið á honum en maðurinn flaug á Hrafnkel og braut næstum því á honum nefið! En eins og sést á myndinni hérna fyrir neðan þá er í lagi með nefið á Hrafnkeli :)

Einnig lenti Björn í því að vera á vappi fyrir utan verslunarmiðstöð með sundhettu, sólgleraugu og í hvítum frottebaðslopp. Hann hafði ætlað sér að fara í sjóinn en var að bíða eftir Hrafnkeli og Hilmari. Lögreglumenn komu að honum og spurðu hvort það væri ekki allt í lagi hjá honum. Bjössi svaraði: ''No no, I´m going for a swim in the Open Water, I´m not a wanker!''

Bjössi í baðsloppnum fræga
5 ummæli:
Gott það er í lagi með alla.
Gat nú ekki annað en brosað út annað þegar ég sá þetta fyrir mér! :D
Er þetta ekki merki um að allt muni ganga vel?
Bestu kveðjur úr sjónum á íslandi,
Kristín Strandvörður.
Lýtur ágætlega út nefið, rosa flott mynd. Vondandi að allt gangi nú upp og muna að vera dugleg að æfa ykkur. Leyfið okkur að heyra hvernig þetta gekk hjá indversku dömunum.
kv úr rigningunni á Fróni
Gat nú verið að Hilmar og Keli væru í verslunarmiðstöð!!
Vá, vá, úff þið þurfið að vera með neyðarljósin á ykkur annarstaðar en í sjónum. Farið vel með ykkur og farið varðlega. Gott að þið séuð að stunda lyftingar með þessu Hilmar og Keli verslunarmiðstöðvargæjar :)
kveðja Hildur
jeminn eini allt að gerast!! nefið lítur ekkert svo illa út....:)
knús Kolla
Skrifa ummæli