þriðjudagur, 15. júlí 2008

Tæki sem sýnir staðsetningu sundmannsins

Nokia Sports Tracker er tæki sem verður notað til að sýna GPS staðsetningu sundmannsins á meðan á sundinu stendur. Tækið var prófaðí dag með góðum árangri og með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan má sjá hvernig tækið sýnir staðsetninguna á korti. Tækið býður upp á þann möguleika að sýna myndir á leiðinni og verður því hægt að smella á tákn sem birtast á kortinu til að sjá myndirnar. Tækið sýnir jafnframt meðalhraða, hámarkshraða, vegalengd og fleira. http://sportstracker.nokia.com/nts/workoutdetail/index.do?id=298485

Hér fyrir neðan má sjá hvernig að upplýsingarnar birtast. Deplinn sýnir hvar tækið er staðsett hverju sinni.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er þetta Dáni úti að hlaupa ?
Bibba

Nafnlaus sagði...

Mér sýnist þetta vera Birna úti að versla.(-:

kv+
Villi.

Kalli sagði...

Bara svo það sé enginn miskilningur þá er þetta Kiddi á línuskautum. Vildi líka láta ykkur vita af því að þessari prófun er lokið.

Nafnlaus sagði...

Okkar bestu kveðjur til þín Birna
Palli og Stína

Nafnlaus sagði...

Bestu kveðjur til allra!
þið eruð orðin svo tæknivædd.
Við verðum límd við tölvuna á morgun, gangi þér vel Benni minn. Við látum kertið loga.

Bestu kveðjur,
Kristín

Nafnlaus sagði...

Sæl
Gott að vita að verðið leifi sund í fyrramáli. Óska Benedikt alls hins besta og gaman að geta notað þessa staðsetningartækni.

Kv
SKB