miðvikudagur, 16. júlí 2008

Makríllinn snæddur og vandræði með sundhettu


Vel veiðist í Ermarsundinu þessa stundina. Gary og Ann gæða sér á nýveiddum makríl.

Benni hefur nú lagt 29 km að baki. Benni var alveg að missa sundhettuna og -gleraugun en náði að redda því með ærinni fyrirhöfn. Hann syndir í beinni línu en hann gerði í fyrra en lendir sennilega samt í straumi sem gæti borið hann austur med Frakklandsströnd. Hann nær þá bara landi aðeins austar - Hvað með það?

Staðsetning kemur von bráðar.

Styrkja Ermarsund 2008

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ,
hér er hægt að hlusta á viðtal við Grétu í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 sem var tekið núna rétt fyrir fimm: http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/ermarsundhalfnadur.wma

Nafnlaus sagði...

það vantar aftan á linkinn, lokin eiga að vera:
ermarsundhalfnadur.wma

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt Benni - koma svo!!
Gangi þér vel með seinni hlutann.
kv.
Steinn

Nafnlaus sagði...

Það að vera búinn að synda 29km í sjónum er meiriháttar afrek.

--Berjast í þessu Benni

kv
SKB

Nafnlaus sagði...

Geysilega vönduð vinna!

Nafnlaus sagði...



Ég hef verið að segja fólki frá heimasíðunni. Tók eftir að mbl.is er ekki með vísun yfir á heimasíðuna.

Er að hugsa fallega til þín Benni.

Kveðja
Stefán tengdarsonur

Nafnlaus sagði...

Áfram Benni!!!!
kveðjur frá sundlauginni á Tálknafirði!!!
Kolla

Nafnlaus sagði...

Halló allir bátsverjar!
Vökupartýið hjá fjölskyldunni er hafið hérna á Kristnibrautinni. Allir hressir og kátir (mis mikill hnútur í maga) og Benna-lakkrís til að snæða með.

Baráttukveðjur frá öllum hér!

kv Thelma

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt Benni,
Við Garpafélagar þínir erum að hittast í kvöld og fylgjumst spennt með þér - verðum með þér í anda ;o) Þú stendur þig frábærlega.
Bestu kveðjur,
Þórdís