miðvikudagur, 16. júlí 2008

Kallinn sem kom honum yfir!

Andy King - algjört æði!

15 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju tengdapabbi. Við erum öll rosalega stolt að þér.


Fyrir okkur á hliðarlínunni er þetta búið að vera aðeins of spennandi. Allt frá því að bíða eftir að þú kæmist í sjóinn þar til þú potaðir tánnum á botninn í Frakklandi. Innst inn vissi maður að þú myndir á þrjóskunni
koma þér yfir.

Kveðja Stefán

Nafnlaus sagði...

Til hamingju, elsku Benni okkar. Þú ert mesta hetjan xxxxx I og P

Nafnlaus sagði...

Kveðja af Kristnibrautinni.!

TIL HAMINGJU ÞÚ ERT BESTUR!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með glæsilegt afrek. Þú er algjör nagli. Það verður gaman að sjá þig sköllóttan eftir að Keli káti karl krúnurakar þig.
kv.
Steinn

Nafnlaus sagði...

Sæll! þetta er rosalegt, eitt mesta íþróttaafrek íslendings Benni. Innilega til hamingju með þetta - ég held bara að þú sért orðin mín fyrirmynd í þrautsegju.

Kveðja Hafrún

Nafnlaus sagði...

Bravó bravó Benni frábært við eigum eftir að fagna þessum frábæra árangri vel og lengi. Kær kveðja frá öllum í Nauthólsvík.
Til hamingju enn og aftur ólei ólei ólei....ólei ólei

Árni í Nauthólsvík

Unknown sagði...

Fyrir nokkrum árum rakst ég og 2 félagar mínir í Sjósundfélagi Geislans (a.k.a. sjósundfélagið meira uppúr en oní) á Benedikt í Nauthólsvík snemmvors er hann var að leita sér að einhverjum félögum til að iðka sjósund með. Hverjum hefði dotti í hug að Benedikt ætti eftir að synda Ermasund.

Til lukku þú ert snillingur...
Bragi, Axel, Gísli

Nafnlaus sagði...

Þetta er sko með meiri afreksverkum Íslandssögunnar!!! og þó víðar væri leitað.
Til hamingju strákurk

Nafnlaus sagði...

Ertu kominn offisíellt yfir til Frakklands. Getum við fengið staðfestingu sem dreifa má á netinu :-D

Nafnlaus sagði...

Þá getum við slakað á í öxlunum...
Til hamingju Benni. Þvílíkur kraftur, seigla og öryggi. Og þrjóskan gerir útslagið !
Frábært hjá þér.
Íslendingar eru stoltir í dag

KV
Gunna Ás og Jónsi

Nafnlaus sagði...

BROSIÐ ER FROSIÐ .... þvílíkur sundkall, þú-sund-kall - algjör orkubolti .... hvað næst? Atlandshafið?

kv
Raggi

PS. ég verð bara með næst :) Átti þó í erfiðleikum með 1km í dag :(

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með mesta afrek íslendings í sundi hingað til
fyri hönd ættarinnar.
Bubbi með kveðju frá Jonnu

Nafnlaus sagði...

við Breiðabliksgarparnir erum rosalega stolt af þér. Skálum í kampavíni. Innilega til hamingju.
xxx
Þórdís f.h. Garpa

Nafnlaus sagði...

Íslendingar í Kaupmannahöfn,sem fylgst hafa spenntir með samfagna! Áfram Ísland!

Nafnlaus sagði...

Glæsileeeegttöttött, ma bara stamar á þessu, já fyrir utan þetta frábæra sund þá eins og fleirum held ég að það verði gaman að sjá þig sköllóttann við heimkomu.
Kveðjur
Örnólfur Valdimars og fjölskylda.