mánudagur, 14. júlí 2008

Indversku stelpunar komust ekki yfir

Vorum að fá fréttir frá skipstjóranum okkar, Andy King, að hann væri á leiðinni til baka með Indversku stelpurnar. Því miður komust þær ekki yfir. Þetta þýðir að Benedikt er næstur í röðinni og boðsundsveitin þar á eftir. Við munum hitta skipstjórann niðri á höfn kl 19:oo (18:00 íslenskum tími) og þá vitum við nánar um framvindu mála. Nánari fréttir koma um leið og við vitum meira.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bíðum spennt!
Allt til reiðu fyrir Ermarsundsvöku á Kristnibrautinni!!
Toi, toi
Dagrún

Nafnlaus sagði...

Já núna er bara að krossa puttana:-)
Maður víkur ekki frá tölvunni þessa dagana:-)
Ásgeir J

Nafnlaus sagði...

Nauthólsvíkurandinn er með ykkur!

Nafnlaus sagði...

Leiðinlegt að þær indversku komust ekki yfir.

Ég var beðinn um að að senda ykkur baráttukveðjur frá 200 manna ættarmóti sem haldið var í Maraþaraborg (Reykhólum) um helgina.

Það ríkir almenn trú á því meðal vina og vandamanna að þið skorið tvöfallt.
Setjið nú nafn ykkar á söguspjöldin.

Helga María og Arnór biðja að heilsa mömmu sinni.
Þú ert hetjan okkar Birna mín.

Hafið gaman af þessu.
Kveðja.
Villi.

Nafnlaus sagði...

Vonandi getið þið farið á stað sem fyrst;) Gangi ykkur vel
kv, Dagný (systir Dána)

Nafnlaus sagði...

maður er orðin svo spenntur!!!
kv.Kolla

Nafnlaus sagði...

Gangi ykkur alveg ofsalega vel! Þið getið þetta, 100%!!

Baráttukveðjur frá Hafnarfirðinum.