miðvikudagur, 16. júlí 2008

Hnit fyrir staðsetningu sunds


Þar sem þjónustuaðili hér úti fyrir GPRS gagnaflutning er að bregðast okkur þá ætlum við að láta fylgja GPS hnit með hverri frétt sem kemur á síðuna. Við munum láta fylgja mynd úr Google Earth þar sem hægt er sjá framgang sundsins. Einnig getur fólk slegið inn hnitin beint í Google Earth og séð hvar Benedikt er staddur.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvernig gengur?

Björn sagði...

Hæ Afi. Allir eru að fylgjast með í fannafoldinni. Sendum hlýjan hug í sundið til hans