fimmtudagur, 17. júlí 2008

Boðsundsveit ætlar að reyna kl 11:00 ! (10:00 ísl)


Allar líkur voru á því að boðsundsveit færi ekki á stað vegna slæms sjólags og veðurútlits. Skipstjórinn Andy King var nánast búinn að slá sundið af og bauð okkur að skoða sunnudaginn. Það hefði þýtt að við værum á leiðinni heim á morgun.

Rétt í þessu hringdi hann aftur og sagði okkur á mæta niðri á bryggju kl 10:30 eða 9:30 að íslenskum tíma. Hann sá smá glætu og við erum staðráðin í að reyna við þetta. Mjög líklegt að við þurfum að fara í plan B og synda eina leið vegna slæms veðurs.
Röð á Boðsundsveit er eftirfarandi:
1. Heimir Örn Sveinsson
2. Hálfdán Freyr Örnólfsson
3. Kristinn Magnússon
4. Fylkir Þ. Sævarsson
5. Björn Ásgeir Guðmundsson
6. Hrafnkell Marínósson
7. Birna Jóhanna Ólafsdóttir
8. Hilmar Hreinsson
Þar sem þjónustuaðili fyrir GPRS samband er ekki að virka á Ermarsundinu þá er því miður ekki hægt að fylgjast með GPS í beinni með Nokia Sports Tracker nema fyrstu 5 km.
Eins og í gær þá stefnum við á að uppfæra síðuna okkar reglulega og færa fréttir frá sundi boðsundsveitar.
Sundleiðin og nánari lýsing í máli og myndum fyrir sund Benedikts og boðsundsveitar á morgun:

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nú er bara að negla á þetta. Þið eruð auðvitað öllu vön verðurfarslega og hvað með smá vind á Ermasundi!! Ég er viss um að 3m ölduhæð er jók miða við hvernig öldugangi Keli hefur synt í!
kv. og gangi ykkur vel.
Steinn

Nafnlaus sagði...

Taka þetta svo !! Gangi ykkur vel.
kv
Hallgrímur Gröndal

Nafnlaus sagði...

Gangi ykkur vel.
þetta er ekkert helvítis fristihús

Kveðja Árni Rúnar

Ps. Kaffi í suðurbæjarlaug bíður ykkar svo við heimkomu.

Nafnlaus sagði...

Gangi ykkur vel;)
kv, Dagný Hrund