miðvikudagur, 9. júlí 2008

Hópsund til að kveðja boðsundssveitina

Hópsund verður í kvöld klukkan 20 við golfvöllinn á Álftanesi. SH-ingar munu fjölmenna á svæðið og bregða sér í sjóinn og kveðja þannig boðsundsveitina sem ætlar að synda yfir Ermarsund á eftir Benedikt Hjartarsyni sjósundkappa. Búast má við fjölmenni.

Sjá meira á http://www.sh.is/.

Fyrstu sjósundmennirnir eru nú farnir utan, þar á meðal Benedikt Hjartarson. Það rignir nú í Dover en veðurspáin er þokkaleg fyrir helgina. Afgangurinn af liðinu fer á fimmtudag og síðasti sundmaðurinn heldur utan á sunnudaginn. Búast má við að sundmennirnir þreyti sundið eftir helgina.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jæja.
Nú er búið að auglýsa síðuna í morgunútvarpinu. Hvernig væri að fá fréttir :
Hvernig er útlitið ?
Gefur til sunds á Ermarsundi í dag ?
Eru menn búnir að stinga sér eitthvað ?
Bið að heilsa kallinum mínum
Bibba