miðvikudagur, 16. júlí 2008

Fyrsta matargjöfin tókst vel

Benni fékk fyrstu næringuna þegar hann hafði synt í hálftíma. Það gekk mjög vel. Skipstjórinn vissi í fyrstu ekki til hvers veiðistöngin var - hafði aldrei séð þessa snilldaraðferð áður!

Sjá GPS staðsetningu sunds (ATH, vantar fyrstu 2,5 km) Þysjið inn og út með + og - . Veljið H fyrir Satelite með skýringum

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

frábært!! ég fylgjist spennt með!!!!

Nafnlaus sagði...

Þetta gengur fínt.
Við fylgjumst spennt með heima á Fróni.
Flott að fylgjast með þessu í beinni.
Hvernig er veðrið? Er það samkvæmt spá?

kveðja
Villi.

Nafnlaus sagði...

Frábært að að geta fengið að fylgjast með . Benni gangi þér sem allra best.... flottar myndir.

Kveðja
Gerða

Nafnlaus sagði...

Þetta er tær snilld! Góða skemmtun!
Við skemmtum okkur vel við að fylgjast með við skjáinn heima í stofu. "Vakan" hefst svo síðdegis.
Dagrún

Nafnlaus sagði...

Jæja - nú er það "moment of truth" - vonandi er veðrið, straumar og hitastig hagstætt. Nú ferðu yfir Benni, ekki spurning. Fylgist spenntur með gps - inu, það er huggun í því að hafa það til að fylgjast með.
Við félagar þínir úr sundinu heima sendum þér baráttukveðjur....
Kv,
Árni Þór

Nafnlaus sagði...

Rosalega skemmtilegt að fylgjast með á GPS-inu :D

Gangi þér ofsalega vel Benedikt!

Nafnlaus sagði...

Jæja Benni ég er á því að þú komir til með að klára þetta enda lítt þekktur fyrir annað enn að klára það sem þú tekur þér fyrir hendur og það með stæl. og á því er engin vafi ég fylgist grant með og styð af kappi! skemmtilegt að hafa svo gps :)

Kær Kveðja

Friðrik ( Frikki var nemi hjá þér í MK)