sunnudagur, 20. júlí 2008

Nokkrar staðreyndir um boðsund yfir Ermarsundið

Alls hafa um 3.520 sundmenn tekið þátt í 592 boðsundum sem hafa tekist. 315 hafa farið fram og til baka. Það er um 40 prósent sem mistekst. Í ár hafa átta lið komist yfir. Sumir komast ekki af stað vegna veðurs og aðrir gefast upp vegna veðurs, sjóveiki og þreytu. Það eru mjög strangar reglur sem gilda um þetta. Ef einn í sveitinni er til dæmis sjóveikur og kemst ekki út í, þá er boðsundið ógilt.

Heimsmetið báðar leiðir á bandaríska landsliðið í sundi, 14 klst. og 18 mín. Við erum að gera okkur vonir um vera 20 - 24 klst báðar leiðir ef veður og sjólag leyfir.

Við höfum hitt aðrar boðsundsveitir sem hafa beðið eins og við. Breski herinn er til dæmis með sex lið sem ætla að keppa sín á milli. Þau eru með sína eigin báta þannig að þau fá þetta ekki skráð sem Ermarsund.

Sundmenn og boðsundsveitir eru háð skipstjóranum en hann ræður algjörlega ferðinni. Hann metur veður og sjólag og getu sundmanna sinna til að takast á við sjólagið hverju sinni. Við höfum lagt áherslu að við séum vön köldum sjó og sjólagi. Hann hefur tekið tillit til þess en hinsvegar bent okkur á að hann geti ekki tryggt öryggi okkar við vissar aðstæður.

Hvort sem það er einstaklingssund eða boðsund þá fer þetta allt eftir sjávarföllum, straumum, veðrum og síðan ekki síst alhliða sjósundformi þeirra sem synda. Það er ekki bara hraði og sundgeta sem skiptir máli heldur koma fleiri þættir inn eins og kuldaþol, langtímaþrek og síðan ekki síst hugarfarið.

Nú hefur Benni með sínu stórkostlega íþróttaafreki vakið gríðarlega mikla athygli á sjósundi. Hann er kyndilberi sjósunds á Íslandi og ef boðsundsveitinni tekst þetta, þá er verkefni sjósundlandsliðsins fullkomnað. Þá höfum við rutt brautina fyrir aðra íslenska sjósundmenn og boðsundsveitir til að reyna við Ermarsundið.

Sjá meira um tölfræði á þessari síðu. Þar má sjá að Benedikt er kominn inn á listann. :)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

...ég er búinn að pakka

Kalli sagði...

Flott að setja inn þessar staðreyndir það hjálpar til við að gera sér grein fyrir hvað þið eruð að glíma við

Nafnlaus sagði...

Gangi ykkur rosalega vel!!! þið eruð öll algjörir naglar.....vonandi komist þið af stað!!
ég fylgjist vel með!!
kv.Kolla

Nafnlaus sagði...

lart mikid