
Þegar Benni fékk næringu síðast spurði hann hvort þetta ætlaði engan endi að taka. Kannski ekki skrítið að hann spyrji eftir 13 tíma á sundi. Hann heldur góðum meðalhraða og hefur lagt 46 km að baki.
Nú er Benedikt kominn suður fyrir tangann Cap Gris-Nez. Hann er um það bil 4 km frá landi. Hann á eftir að taka beygjuna inn í land og inn fyrir tangann. Staðsetningin er mjög góð miðað við í fyrra því þá vorum við ekki komnir sunnan fyrir tangann þegar við beygðum inn að landi. Á Google Earth er hægt að reikna það út að hann er 4 km frá landi!
Staðsetning er N.50.8470 E.1.5078 og gefur á Google Earth:
Við vorum að frétta af tveimur sundmönnum sem eru komnir í land Frakklandsmegin en þeir lögðu af stað fimm til fimm og hálfum tíma fyrr í hann í morgun.

5 ummæli:
Magnað!
obbobb obb, var einhver búinn að kenna Benna frönsku?
Sæl,
N.50.8470 E.1.5078 er sennilega jafnt og 50°50'82"N og 01°30'47"
Ef siglingafræðin er enn til staðar hjá mér.
KV
Villi.
Villi
Ef þú ert að nota Google Earth, getur þú farið í Tools->options og hakað þar við Decimal Degrees. Þá ertu kominn með punktinn á sama format og við fáum hann á.
Benni
Koma berjast svo á lokasprettinum
KV. Viktor
Ok takk.
Skrifa ummæli