

Ævintýrin gerast enn. Við sigldum út í morgun til að meta aðstæður. Þegar út var komið kom í ljós að það var brjáluð bræla og gírakassinn bilaður. Við erum nú í bakkgír og búin að reka nokkra kílómetra austur fyrir Dover. Dráttarbátur er á leiðinni á staðinn.
8 ummæli:
Úffff. Ég verð sjóveik bara af því að horfa á þessar myndir ...
Svona fjör var í partíinu hjá görpunum okkar Benni :
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/17/sundfelagar_fagna_ermarsundshetju/
kveðja af klakanum
Bibba
Jæja,
Þið hafið þá nægan tíma til að klippa Benna.
Kv
Villi.
Það vantar aðeins aftan á linkinn:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/17/
sundfelagar_fagna_ermarsundshetju/
Ég vil fá beina lýsingu af því.
Með sportstrakkernum á.....
KV
Villi.
Áfram Heimir láttu ekki veður stoppa þig. Ef það tekst ekki núna verður þú að fara með Sleggjunni á næsta ári. Þá verður þú annar eða þriðji Íslendingur sem ferð yfir Ermarsundið.
Körfuknattleiksdeild SH
Villi mér finnst að þú ættir að fá verðlauninn Íþróttamaður ársins fyrir að vera svona fljótur að pikka á lyklaborðið. Maður var varla búin að ýta á "refresh" í gær og þú varst búin að commenta.
Kv Thelma
Var að tala við Birnu.
Hún var að vonum svekkt yfir því að þau urðu frá að hverfa í morgun.
Hún var að biðja um leyfi til að vera lengur úti. Hún átti nefnilega að kaupa inn þessa viku og elda..
Ég gaf henni leyfi. (-:
Það er hins vegar óvíst enn hvað þau gera. Einhverjir fá ekki lengri útivistarleyfi og þurfa að fara heim á morgun.
Vonum það besta áfam.
KV
Villi.
Skrifa ummæli