
Benni heldur meðalhraðanum 3,4 km og er kominn 17 km á 5 klst. Benni finnur fyrir smá krampa í læri en að öðru leyti er allt í góðu lagi. Sjóhiti er 17 gráður en til samanburðar þá er hann 10 til 12 gráður á sumrin í Reykjavík. Veðrið er þokkalegt og sjórinn er tiltölulega lygn. Spáin fer hinsvegar versnandi þegar á líður.
Í
Veðurbauju 15 km vestur af Calais í Frakklandi, má sjá veðrið eins það er
núna.
Stefán Karl heldur honum félagskap næsta klukkutímann. Eins gott að Stefán og Benni tóku með sér vegabréfið því Frakkland nálgast.
13 ummæli:
Gott að fá svona fréttir af ykkur. Maður er að farast úr spenningi.
Koma svo strákar!!
Áfram Benni. Vona að þú hafir munað eftir saltpillum sem koma í veg fyrir krampa
kv. Steinn
Það er nóg salt í sjónum held ég ;D
kv Thelma
Gangi ykkur vel. Getið þið póstað gps hniti með næstu frétt? þá getur maður skoðað framvinduna í google earth, þangað til þið komist í nægjanlega gott gsm samband fyrir sports tracker græjuna.
Góðu punktur.
Baráttukveðjur! Þú stendur þig vel og hristir þetta bara fram úr erminni:-)
kv.
Sundkona
Gangi ykkur vel. Bíð spennt eftir næstu fréttum og vona að boðsundsveitin komist nú líka ;)
Kv. Eva Ösp systir hans Dána.
Sælir.
Hvernig er það er captain King eitthvað tregur á að gefa upp staðsetningu? Er hann ekki með GPS?
Eruð þið farin að sjá á ströndina hinum megin?
Við höldum áfram að senda ykkur góða strauma af Álftanesinu.
Kv
Villi.
Vertu duglegur að drekka, Benni !
Bibba
áfram beint áfram
Siggi Har
Er hann ekki ca. hálfnaður ?
Getið þið ekki reynt að draga hann á veiðistönginni þannig hann hvíli fótinn ?
Baráttukveðjur frá Íslandi, Kv. Svenni Jons
Go Benni, go Benni ... go for the goal. Ekki láta smá krampa pirra þig. Þinn tími er kominn núna að klára þetta sund.
JUST DO IT!!
Með Ermarsundskveðju,
Ásdís og Doddi KR-ingar
Ef Benni er jafn þrjóskur í sundinu eins og hann er í bakarafaginu þá er ekki spurning um að hann klárar þetta!
Skrifa ummæli