Í gærkvöldi kom kallið frá skipstjóranum okkar, Andy King. Benedikt fer líklega frá Dover kl. 8 (7 að íslenskum tíma) til Frakklands. Veðurspáin er tiltölulega góð fyrir daginn.Með hjálp símans Nokia N95 frá Hátækni og samskiptalausnum Símans verður síðan (ermarsund.com) uppfærð með texta, myndum og GPS staðsetningu sundsins (Nokia Sports Tracker). Fyrr í dag gerðum við tilraun á GPS virkninni og gekk hún vel.
Nokkur atriði þarf hafa í huga þegar fólk skoðar GPS staðsetningu sundsins:
- Fyrst þarf ýta á Nokia Sport Tracker Lógóið efst upp til hægri. (Til að hafa tvo glugga uppi, einn af bloggsíðunni og hinn fyrir GPS staðsetningi, er gott að hægrismella á slóð og velja open in new window)
- Nokia Sports Tracker síðan kemur upp með korti og helstu upplýsingum til hægri (sjá mynd):
Það gæti þurfti að þysja myndina út eða inn, rauða + eða - hnapparnir, til að fá rétta stærð af korti. Einnig er hægt að stilla gerð korts með því að velja rauðu M,S,H,T takkana. H sem stendur fyrir Satelite með skýringum er gott val.Í byrjun sundsins við háu hvítu klettana við Shakespare Beach verða tækin sambandslaus í stuttan tíma á meðan við siglum frá klettunum. Því má búast við að GPS staðsetning komist ekki inn á netið fyrr en hann er búinn með sirka 10 mín. af sundinu.
Boðsundsveit mun síðan líklega synda á fimmtudaginn.
Benedikt biður kærlega að heilsa öllum vinum og vandamönnum.
7 ummæli:
Gangi þér sem allra best Benni.
Við erum að fara í 12 tíma ferð með leikskólanum hennar Regínu í Hersey Park. Það er spáð 35-38°C. Ekki laust við að við öfundum þig af svalanum í sjónum. Munum hringja reglulega í stóru dæturnar og fá fréttir af sundinu.
Kveðja,
Björg og fjölskylda.
Þú massar þetta kallinn minn.
Knús til Ásgeirs
Bibba
Baráttukveðjur;
KOMA SVO !
Taka á þessu maður !
Sund kveðja #
Tengdaforeldrar Hálfdáns
Gangi þér vel, Benni. "Allez" eins og Frakkarnir segja. kv. Anna og Frímann
Áfram Benni!!
Bið að heilsa þeim frönsku.
Kveðja
Villi.
Gangi þér vel ég fylgist spennt með.
Hafrún
Skrifa ummæli