Kæru fjölskyldur, vinir, félagar, samstarfsaðilar og þeir sem fylgdust með sundinu yfir Ermina. Mér er efst í huga þakklæti til ykkar allra. Ekki hefur enn unnist tími til að lesa þær færslur sem settar voru inn á netið né þær athugasemdir og hvatningar sem þar komu fram. Það mun ég gera um leið og heim er komið. Sumar að þessum hvatningum fékk ég að heyra út í sjó og hlýnaði óneitanlega við það.
Þó að við sem tókum þátt í einstaklingssundinu höldum heim í kvöld (förum héðan kl 10 að enskum tíma) með flugvél frá Iceland Express, þá er hlutverki landsliðsins ekki lokið. Boðsundssveitin sem skipuð er okkar fremsta sjósundfólki á eftir að fara sitt sund. Ég veit að sveitin er tilbúin. Aðeins vantar sjólag og veður. Það er skelfilegt að bíða það veit ég manna best. Það er líka erfitt að veltast um á báti út á sjó synda um stund koma um borð ná ekki að hlýja sér til fulls og fara svo út í aftur. Endurtaka þetta nokkrumsinnum. Þetta er þrekraun sem sveitin er tilbúin í. Hún á eftir að standa sig með sóma. Við stöndum með þeim.
Kærar þakkir fyrir allt.
Benedikt Hjartarson.
7 ummæli:
Vel mælt Benni og vonandi fær boðsundsveitin gott veður á sunnudag - allir eru svo sannarlega tilbúnir að synda og í formi til þessu.
Annars var ótrúlegt hvað landinn fylgdist vel með sundinu og afreki þínu sem fær vonandi stóran sess í íþróttasögu okkar landsmanna.
komaso
kv.
Steinn
Verður ekki móttaka á Leifsstöð þegar HETJAN "okkar" kemur til landsins?
Júbb!
kv mótökunefnd :D
Hverjir skipa nefndina?
hahaha Þetta var eiginlega djók.
kv Thelma sem fer allavegana útá flugvöll :D
Það verður spennandi að fylgjast með boðsundssveitinni þegar hún leggur í hann.
Kveðja Gerða
Frábært afrek Benni!!
Kkv. Einar Óli
Skrifa ummæli