miðvikudagur, 16. júlí 2008

Gott veður

Gísli Hjartar (bróðir Benna) og Jón Karl myndatökumaður baða sig í blíðunni. Veðrið er fínt, heldur betra en við var búist, ef eitthvað. Það átti ad vera alveg sólarlaust samkvæmt spánni en nú er hann búinn að rífa af sér.
Fyrir utan Jón og Gísla eru Ingþór Bjarnason, Ásgeir Elíasson, Stefán Karl Sævarsson, skipstjórinn og einn annar í áhöfn, tveir eftirlitsmenn og Gréta sem bloggar.

Vindaspá og almenn veðurspá fyrir daginn.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Spennandi að fylgjast með. Sportstracker sýnir ekki nýjar færslur núna. Er tækið á Benna eða í bátnum?
Gangi ykkur vel,
Guðni, Fjarðarpóstinum Hafnarfirði

Nafnlaus sagði...

Gaman að fylgjast með og gangi ykkur vel

Bestu kveðjur
Karl Marinósson
ps.kannski maður bregði sér í Suðurbæjarlaugina og taki 200 m