miðvikudagur, 16. júlí 2008

Fyrsti Íslendingurinn til að synda yfir Ermarsundið

Liðsmenn boðsundsveitar óska Benna innilega til hamingju. Þeir eru búnir að sitja stíft við skjáinn í kvöld. Hér var brotið blað í Íslandsögunni með einu mesta íþróttarafreki fyrr og síðar. Benni lagði að baki 60 km sund á 16:01 klst ! Þetta afrek Benna tvíeflir boðsundssveitina fyrir sundið sem hugsanlega verður á morgun. Keli bíður með klippurnar...

27 ummæli:

Nafnlaus sagði...

maður ætti kannski að prófa líka og taka þetta á 16 tímum sléttum :-þ

Nafnlaus sagði...

Váá!!
Innilega til hamingju með afrekið elsku Benni!!!

Knus&kram
Kristín

Nafnlaus sagði...

Áfram Ísland!

Nafnlaus sagði...

Farið nú í háttinn svo að þið verðið upplögð í morguns-árið.
Við sendum ykkur góða strauma.

KV
Villi, Arnór og Helga.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með árangurinn Benni og gangi ykkur í boðsundsveitinni rosalega vel og vonandi náið þið að leggja í hann á morgun ;)
Kveðja. Eva Ösp, systir hans Dána litla ;)

Nafnlaus sagði...

Góður
kveðja Ísleifur

Nafnlaus sagði...

Við óskum boðsundssveitinni heilla, hafið gaman að og vonandi tekst ykkur líkt upp og Benna hetju.
Þakkir líka til stuðningsmanna Benna og bátverjanna allra fyrir frábæran fréttaflutning.
Palli og Ingunn

Retinus sagði...

Glæsilegt!
Innilega til hamingju með þetta glæsilega sund Benedikt!

Nafnlaus sagði...

Frábært afrek og innilega til hamingju með þetta Benni. Nú þarf bara boðsundssveitin að hamra þetta á morgun líka. Kv. Svenni Jons

Aðalsteinn sagði...

Stórkostlegt!

Innilegar hamingjuóskir til þín Benni og til allra í þínu frábæra stuðningsliði!

Aðalsteinn

Nafnlaus sagði...

Til hamingju Benni!
Þetta er frábært afrek og ég vissi að gamla keppnisskapið myndi skila þér í land. Það er búið að vera mjög gaman að fylgjast með þér á þessari frábæru síðu.

Kv
Haldor
KR-Garpur

Nafnlaus sagði...

Til hamingju hetja!
kristrún

Nafnlaus sagði...

Til hamingju enn og aftur!! búið að vera ótrúlega gaman að fylgjast með þessu hérna á síðunni....frábært hvað þið voruð dugleg að skella inn færslum!!!
kv.Kolla

Nafnlaus sagði...

Til haningju Benedikt,
þetta sund hlýtur að teljast með meiriháttar afrekum hjá okkur Íslendingum

kv
SKB

Nafnlaus sagði...

Til hamingju Benidikt með framúrskarandi árangur. Glæsilegt afrek !

Dáni og félagar í boðsundssveitinni taka á þessu þó á móti blási Áfram Ísland.

Kveðja Heimir og Aldís Keflavík.

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með árangurinn!! Alveg frábært:)

Bestu kveðjur
Anna Fanney, Halli og Oddur Jarl

Nafnlaus sagði...

Til hamingju!
Þetta er alveg frábært!

kv.Brian

Nafnlaus sagði...

Benni og áhöfn!
Innilega til hamingju með þetta afrek! Áhöfnin á þakkir skyldar fyrir frábæran stuðning. Nú hefur Benni skráð nafn sitt á spjöld sögunnar.
Mamma

Nafnlaus sagði...

Já en bíddu nú við, ætlaðirðu ekki að klára þetta á 0-16 klst,,, það sagði mogginn. 16.01 jæja, það gengur bara betur næst..hahahahahaha. Frábært hjá þér Benni. Nú hættum við að gorta af Gunnari frá Hlíðarenda og montum okkur af Benna bakara í Íslendinasögum framtíðarinnar....

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með þetta glæsilega afrek.
kveðja Dóra, Kristján og Óli

Unknown sagði...

Til hamingju með þetta. Svona gera ekki eðlilegir menn.

nafni þinn bakari

Nafnlaus sagði...

Heja Benni!!
Hamingjuóskir frá Smálöndum.
Sólveig og Óli H.

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með árangurinn!

Nafnlaus sagði...

Blessaður Benni bakari og til hamingju með þennan frábæra árangur, ég fót ekki að sofa fyrr en að ég var viss um að þér tækist að klára í þetta sinn. En og aftur til HAMINGJU.

kveðja
Guðmundur Jakobsson ( Gummi Kobba)

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með þennan glæsilega áfanga. Kv. Rikki og Gulla

Nafnlaus sagði...

Frábært! Æðislegt!

Til hamingju með þennan klikkaða áfanga.

Kveðja frá Argentínu.

Nafnlaus sagði...

Bestu haminguóskir með frábært afrek Benedikt. Þeir hefðu verið stoltir af þér vinirnir Eyjólfur Jónsson og Pétur Eiríksson. Kveðja.
Elísabet Pétursdóttir dóttir Péturs Eiríkssonar