miðvikudagur, 16. júlí 2008

Við ætlum að hafa það!



Benni syndir af ótrúlegum krafti. Við misstum af höfðanum Cap Gris-Nez en Andy skipstjóri ætlar að ná honum að landi aðeins austar. Við erum að reyna að halda kúlinu - gengur misvel. Benni fær orkute til að klára þetta!

Styrkja Ermarsund 2008

17 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jæja kæri vinur, nú er að duga eða drepast. Lítill spotti eftir, líklega ekki í meðbyr, nei, líklega á móti hörðum straumi. Þú hefur þetta núna, ég er viss um það. Samt ætla ég að bíða með að óska þér til hamingju .... og vonandi gleymdir þú ekki passanum :)

kv
Raggi

Nafnlaus sagði...

Við bíðum spennt með kampavínið í hálsinum. Bibba og Unnur hafa bæst í hópinn (Beta, Frímann, Anna, Þorgeir, Þórdís, Þorleifur, Jóhanna, Helga, Einar, Eyrún, Kristján, Siggi ...9

Fulla ferð áfram!

Þorgeir og co

Nafnlaus sagði...

Heimir á heiður skilið fyrir að halda okkur svona vel upplýstum!
Við hugsum til ykkar og sendum ykkur styrk!!!!!
Kv
Árni, Gerða og Stefán Mogensen

Nafnlaus sagði...

Frábært. Svona, nú er það lokahnykkurinn! Við höldum niðri í okkur andanum. Koma svo!
Anna/Frímann

Nafnlaus sagði...

auðvitað hefst þetta. mundu bara hvað ég ráðlagði þér varðandi sund ;-)) ná bakkanum...

Nafnlaus sagði...

Það er erfitt að hafa sig frá tölvunni - kominn spennuhnútur í magann ! Takk fyrir hvað þið eruð dugleg að setja inn á síðuna svo hægt sé að fylgjast með.
Áfram Benni klára svo.

Gunna og Jónsi

tanjasara sagði...

thú ert BESTUR

Nafnlaus sagði...

Áfram, áfram, áfram, áfram, áfram!!!!! Áfram, áfram, áfram, áfram. Benni - áfram, áfram, áfram, áfram, áfram.
Ingunn og Palli

Nafnlaus sagði...

Ég sit hérna heima með krosslagða fingur og vona að þetta takist hjá þér. GO GO GO ... negldu þetta núna Benni ... kv. Svenni Jons

tanjasara sagði...

ÁFRAM BENNI THETTA ER AÐ KOMA SVO SKÁLARÐU Í KAMPAVÍN KV:ÍSLENDINGUR

Nafnlaus sagði...

Ótrúlega flott hjá þér

Nafnlaus sagði...

Er Heimir ekkert að uppfæra GPS staðsetningu sundsins?

Nafnlaus sagði...

NÝJUSTU FRÉTTIR!
Benni er á fleygiferð inn að landi! 90° inn og báturinn búinn að snúa við. mesta lagi 40 min eftir.
Þetta fullyrðir skipstjórinn.

Nafnlaus sagði...

Áfram, áfram, þú ert fyrirmynda okkar.

Nafnlaus sagði...

Koma Benni, Áfram nú - þú klárar þetta verkefni !!

kv,
Ágúst Jóhannsson
handknattleiksþjálfari

Nafnlaus sagði...

Smá kick í lokin og þetta er búið ... mundu bara að hækka þreytu- og verkjaþröskuldinn ... og mundu það sem Lance Armstrong sagði: "Sársauki er besti vinur líkamans en versti óvinur íþróttamannsins" - Þú ert ótrúlegur kraftakall!

kv
Raggi

tanjasara sagði...

JÆJA THÁ ER LOKSINS KOMIÐ AÐ THVÍ AÐ VIÐ ÍSLENDINGAR EIGNUÐUMST ÁLVÖRU SUNDMANN TIL HAMINGJU MEÐ ERMARSUND SUNDIÐ INNILEGA TIL HAMINGJU BENEDIKT H MJÖG STOLTUR ÍSLENDINGUR