miðvikudagur, 16. júlí 2008

Nú ræðst þetta fljótlega



Benni syndir enn á góðum hraða. Nú ræðst fljótlega hvort hann nær landi. Við erum 2,2 km frá ströndinni. Förum með straumnum en nálgumst ekki land.

Staðsetning sunds fyrir 20 mín. síðan var 50.8809 N 1.5625 E.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Lakkrísinn er að verða búinn svo þú verður að drífa þig!
Rakel flaug yfir Ermasund áðan og þykist hafa séð hval.
Gengið á Kristnibrautinni

Nafnlaus sagði...

Váá... við erum ótrúlega spenntar yfir þessu tvær úr Grindavík. Þetta verður að hafast. ÁÁÁÁÁÁFFFFFRRRRAAAMMMM með þig ;)

Nafnlaus sagði...

Þetta er skrítin staðsetning.
Er þetta örugglega rétt?

kv
Villi.

Nafnlaus sagði...

Áfram Benni - nú er bara að negla á þennan spotta sem er eftir.
kv. Steinn

Nafnlaus sagði...

10 frettir í sjónvarpinu voru að segja frá því hversu stutt er eftir hjá þér. Sendum þér þvílíkar stuðningskveðjur að strákarnir okkar í handboltanum hafa aldrei fengið annað eins hugskeyti: ÁFRAM Benedikt!

Nafnlaus sagði...

Svona Benni ekki láta einhvern straum stoppa þig af. Klára þetta maður!
Anna/Frímann

Nafnlaus sagði...

Koma svo Benedikt - ekkert mál!
ÁFRAM, ÞETTA ER AÐ HAFAST :)