mánudagur, 9. júlí 2007

Stóri Emmudagurinn !


Nú er ákveðið að við förum í nótt til Frakklands. Við gætum ef vel gengur verið með fyrsta íslendinginn til að synda Ermina. Við höfum beðið nokkra daga tilbúnir og æft. Nú er því lokið. Eftir 15000 mínútur í sjó og laugum, tvisvar sinnum tvo tíma á viku í fimleikum þá er komið að þvi.

Hópurinn samanstendur af einmunaliði sem hver um sig hefur sínu hlutverki að gegna.
Reynsluboltinn Ingþór Bjarnason sálfræðingur, pólfari, göngugarpur og leiðsögumaður. Hann mun hafa yfirumsjón með næringunni og samskiptum við aðila utan leiðangurs.
Stefán Karl Sævarsson verkfræðingur, sundþjálfari, leiðsögumaður og kajakræðari með meiru. Hann sér um sundástand gefur skipanir um stefnu og fylgist með sundmanni.
Heimir Örn Sveinsson, tölvufræðingur, sjósundkappi, og áhugakvikmyndamaður. Hann sér um fjarskiptamál og ætlar að taka upp eitthvað af ferðinni.
Síðastur er svo Benedikt Hjartarson sem hefur notalegasta hlutverkið það er að liggja endilangur yfir til Frakklands. Aumingja hinir sem þurfa að hoppa og skoppa á korktappa.

Við höfum gert allt sem er í okkar valdi og nú er þetta ekki lengur í okkar höndum.
Spáin er góð og vonandi fáum við jafn gott veður og var í gær.
Við viljum að endingu þakka öllum sem gerðu þessa ferð mögulega. Til að gleyma engum tiltek ég ekki neinn sérstakan núna á þessari hraðferð.
Við erum staðráðnir í að standa okkur!
Benni


9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gó Benni
Við hugsum til þín og sendum okkar allra sterkustu strauma
Ironparið Bibba og Ásgeir

Nafnlaus sagði...

Hjartanlega til hamingju með hálfrar aldar afmælið! Frábært að það sé komið í ljós hvenær þú syndir, hér með er gott veður pantað :) Afmæliskveðjur frá Evu, Stefáni og Hildi Emmu

Nafnlaus sagði...

compleanos feliz......til hamingju með afmælið Pabbi, shit hvað þú ert orðinn gamall (ég var ekkert að ljúga þegar ég var lítil og sagðist eiga gamla foreldra). U CAN DO IT :D
KV Thelma

Nafnlaus sagði...

Hæ Benni
Þetta er Hjörtur. Vildi bara óska þér til hamnigju með hálfu öldina. Djöfull ertu orðin gamall. :þ
Kv Hjörtur

P.S. Já og ekki má gleyma heillaóskum með Sundið.(Ekki það að þú þurfir þær.

Nafnlaus sagði...

Sæll Benni, hjartanlega til hamingju með daginn, við óskum að þér gangi vel og alls hins besta við emmusundið. kær kveðja Anna Beta og Rein.

Gisli og fjolskylda sagði...

Kæri Benni.
Innilega til hamingju með afmælið og gangi þér vel með sundið!
Bestu kveðjur úr Grafarvoginum.
Gísli, Gréta og strákarnir.

Nafnlaus sagði...

Hæ pabbi,
Til hamingju með afmælið og TU TU TU. - Rakel Björk

Nafnlaus sagði...

til hamingju með daginn og gangi þér vel í nótt. mundu bara heilræðin góðu..... kv dáni

Nafnlaus sagði...

Benni, þú rúllar þessu upp. Þetta er eins og að drekka vatn!!!
Við höfum tröllatrú á þér.
Áfram Benni!
Lauga og Halli.