Eftir samtal við Ellu gef ég upp reikning á nafni Gísla, bróður Benna. Ella og Benni afþakka beinan fjárstuðning við sundið en vilja gjarnan styrkja góða hluti á Barnaspítala Hringsins í minningu Emmu Katrínar. Þeir sem vilja leggja slíku framtaki lið leggi inn á:
0537-14-651006, kt. 1504603369.
Það var ekki þetta sem við höfðum í huga þegar ég sendi inn comment áðan. Við, foreldrar Emmu Katrínar, erum hins vegar auðvitað afar þakklát fyrir að Benni og Ella vilji beina stuðningi í þennan farveg og stolt af því að geta tengt saman hetjudáð Benna og minningu Emmu á þennan hátt.
Með góðri kveðju, Gréta.
3 ummæli:
Við minnumst Emmu sem fallegrar stúlku, alltaf brosandi eða glottandi og brandararnir aldrei langt undan. Okkur sýnist á öllu að Benni sé í sama skapi og það er því gaman að minnast Emmu með sérstöku með Emmusundi. Við styrkjum Emmusjóðinn með bros á vör. Kveðja, Ingunn og Palli
Gott að geta orðið að liði, sérstaklega í nafni Emmuskotts. - Rakel Björk
Benni hefur svo sannarlega unnið fyrir áheitum. Flott hjá honum að beina þeim til Barnaspítala Hringsins.
Skrifa ummæli