klukkan 18 á staðartíma er hann búinn að vera 10 klukkutíma og 40 mín. í sjónum. 35 km eru búnir sem er eins og bein lína yfir. Hann er búinn að halda meðalhraða 3,4 km á klukkustund seinustu 2 tímana.
Þeir munu koma í land til austurs við wissant.
Benni brosti allan hringinn þegar bátsmenn hans sýndu honum íslenska fánann.
Þeir sögðu að hann ætti sirka 7-8 km eftir sem gera um 3 klukkutíma sökum öldugangs. Hann þarf nú að gefa í til að ná tanganum.
Nú þurfa allir íslendingar nær og fjær að hugsa til hans og bátsmannana (þetta kom frá bátsstrákunum)
Gangi ykkur vel strákar, ég veit að þið getið þetta, við erum öll að fara á límingunum hérna heima :D
4 ummæli:
Eftir samtal við Ellu gef ég upp reikning á nafni Gísla, bróður Benna. Ella og Benni afþakka beinan fjárstuðning við sundið en vilja gjarnan styrkja góða hluti á Barnaspítala Hringsins í minningu Emmu Katrínar. Þeir sem vilja leggja slíku framtaki lið leggi inn á:
0537-14-651006, kt. 1504603369.
Það var ekki þetta sem við höfðum í huga þegar ég sendi inn comment áðan. Við, foreldrar Emmu Katrínar, erum hins vegar auðvitað afar þakklát fyrir að Benni og Ella vilji beina stuðningi í þennan farveg og stolt af því að geta tengt saman hetjudáð Benna og minningu Emmu á þennan hátt.
Með góðri kveðju, Gréta.
Sæl Thelma mín og þið öll á Freyjugötu 42. Við fylgjumst með spennt og svakalega stolt af honum Benna. Hann á orðin nokkra aðdáendur hér í Frederick. Kemur ekki á óvart að Benni syndi þetta brosandi. Hann er alveg ótrúlegur maðurinn.
Sælir Benni og félagar.
Er í sólinni í Laugarási í Birkupstungum og fylgist spenntur með eins og allir.
Bíð eftir fréttum af landgönguleyfi í Frakklandi!
Hvatningarkveðja, HUBB! HUBB!
Júlli og fjölsk.
Verða nokkuð bara blautir brandarar sagðir í kjölfarið á þessu sundi þínu, ha, ha?
Skrifa ummæli