mánudagur, 9. júlí 2007

Tilbúnir í bátana kl 06:00

Þá er undirbúningi nánast lokið og ekkert að gera annað en að drífa sig í háttinn því það verður farið snemma á stað á morgun. Við munum mæta kl 06:00 niður á höfn þar sem skipstjóri okkar hann Eddy mun sigla með okkur á bátnum sínum Anastasia að Shakespeare Beach sem er 2 km frá Dover. Þar mun Benedikt hefja sundið langþráða.

Veðurspáinn er mjög góð beggja megin Ermasundsins.

Frakkland - Calasis http://www.bbc.co.uk/weather/5day.shtml?world=4158

England - Dover http://www.bbc.co.uk/weather/5day.shtml?id=1549

Við munu reyna, ef tæknin leyfir að uppfæra þessa síðu á meðan sundinu stendur með myndum og upplýsingum á 30 mín - 60 mín fresti.

Takk fyrir frábærar athugasemdir (comments) og kær kveðja til allra frá hópnum og afmælisbarninu Benedikti sem er lagstur til svefns :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kæra áhöfn!
Er orðin smá spennt hérna heima og ætlaði bara að senda ykkur bestu strauma í heimi (já ég geri það í alvöru) ég veit hversu ofboðslega mikilvægt er að hafa svo gott lið í kringum sig þegar maður er að keppa að einhverju, það getur skipt öllu. Ég veit líka hversu frábærir þið eruð allir (búin að fá sögur) þannig að ég veit að þig eigið eftir að standa ykkur,

Pabbi U CAN DO IT!
Núna hefur þú allavegana tækifæri til að vera fyrstur, einhverja hluta vegna er ég alveg viss um að þú eigir eftir að gera þetta, pabbi þrjóska, pabbi þrjóskan. Það er eitthvað sem ég veit að þú átt til :D

Góða ferð allir saman,
æðislega góðar kveðjur hérna frá klakanum frá einni sem á ekkert eftir að vinna á morgun sökum spenning :D

kv Thelma