þriðjudagur, 10. júlí 2007

Traustur vinur getur gert kraftaverk.

Stefán Karl (sundþjálfarinn)er farinn útí til að gefa Benna félagsskap (snilld :D).
28 km komnir og 3,3 km er meðalhraði á klukkustund. Þeir færast vestur vegna vesturfallsins. Eftir 3 tíma fara þeir í austurfallið til að ná meðflóðinu í land.

19 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært að eiga svona vin. Áfram Benni ég veit þú getur þetta.

kveðja
Íris

Nafnlaus sagði...

Baráttukveðjur frá Þýskalandi.
Benni þú getur þetta. Við fylgjumst spennt með þér og hugsum fast til þín að þú náir takmarkinu.
kveðjur til allra í liðinu.
Inga og Werner í Viersen Þýskalandi

Nafnlaus sagði...

Koma svo benni. tetta er ekkert frystihus herna. afram afram afram

Nafnlaus sagði...

Já er verið að reyna að stinga bátinn af?? Ætlarðu að synda tilbaka í kvöld? Verst að vera ekki kominn af stað til Frakklands með kaldan öl en ég lyfti glasi þér til heiðurs héðan frá Svíþjóð.

Nafnlaus sagði...

Sendi þér stuðnig í huganum
Baráttu kveðjur

Gummi Kobba

Nafnlaus sagði...

Áfram Benibikt...... glæsilegt að menn skuli fylgja svona ákvörðunum á finntugu.

sundkveðja,

Vignir

Nafnlaus sagði...

Áfram Benni, stinga bátinn af.

kveðja
SVerrir

Nafnlaus sagði...

Þetta er greinilega einvalalið sem þú hefur með þér þarna
Bibba

Nafnlaus sagði...

Syndirðu tilbaka í kvöld eða á að vera flottur á því og taka ferjuna?

Til Hamingju með afmælið í gær og frábæran árangur það sem af er dagsins.

SVerrir

Nafnlaus sagði...

Vil senda þér báráttukveðjur og hrósa þér fyrir framtakið.
Sigfús Ólafsson

Nafnlaus sagði...

Greinilegt að þú ert með trausta menn með þér. Það hefði svo sannarlega verið gaman að vera þarna með þér. Fjölskyldan fylgist spennt með sundinu og bíðum eftir fréttum af því að þú stígir á land í Frakklandi. (kv. Steinn)

Nafnlaus sagði...

Góðar kveðjur til Benedikts héðan úr Gámaþjónustunni. Benedikt tók þátt í gámasundi 29. nóv sl á Lækjartorgi en það var styrktasund fyrir Sundsambandið. Í þessu sundi synti hann í 5 m laug!
Við eigum myndir af þessu sem Jóhannes Long tók og svo voru RUV og stöð 2 á staðnum ef menn vilja bera saman.

Gisli og fjolskylda sagði...

Frábært að þetta skuli ganga svona vel. Maður fylgist spenntur með.
Einhverjir eru búnir að heyra af draumnum hennar Lísu. Hún hringdi í mig í morgun og sagðist hafa dreymt sig og Emmu í ljósum sumarkjólum með blómum að valhoppa í Lækjargötunni í góðum fíling. Svo fór hún á fætur, fletti Fréttablaðinu og sá fréttina um Emmusundið. Þá var merking draumsins augljós: Benni klárar þetta!
Bestu kveðjur úr Lækjargötunni, Gréta.

Nafnlaus sagði...

Syndir hann ekki bara svo beint til íslands :D

Áfram svo og klára þetta og slá nafna þínum við.

Nafnlaus sagði...

Það væri nú alveg eftir pabba að stinga bátinn af, hann er einn af fáum sem ég hef séð taka endasprett í maraþonhlaupi! Áfram pabbi, þú tekur þetta!

Nafnlaus sagði...

Baráttukveðjur frá Írak...frábært..klára þetta svo
kv. þórir

Gisli og fjolskylda sagði...

Eitt í viðbót...
... það er verið að spyrja okkur Gísla hvernig hægt sé að styrkja sundhetjuna. Væri ekki ráð að setja upplýsingar um bankareikning inn á síðuna? Það er vísað á hana af mbl.is og örugglega fullt af fólki sem er að fara inn.
Bara smá pæling - kv., Gréta.

Nafnlaus sagði...

Gréta ég veit ekki um neinn reikning. Er einhver Emmu reikningur? kv Thema

Nafnlaus sagði...

Áfram Benni!!!!!