þriðjudagur, 10. júlí 2007

32 km komnir

komnir eru 32 km eftir 10 klukkustunda sund. Benni vinnur hart í að yfirvinna strauma og er að takast það brosandi. Er á bringursundi til að halda betri stefnu. Sjóhiti er 16,5 gráður.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt. Þetta er alveg að koma. Hafði tröllatrú á þér frá upphafi. Áhöfn þið standið ykkur einnig með glæsibrag.
Birna.

Unknown sagði...

Þetta er ævintýralegt og hreint frábært! Ég óska Benedikt að komast alla leið!

Nafnlaus sagði...

Frábært og nú hillir undir lokasprettinn. Það er þér líkt Benni að takast brosandi á við erfiðasta hluta leiðarinnar. (kv. Steinn).

Nafnlaus sagði...

Áfram Benni !!
Frábært hjá þér :)
Ég fylgist spennt með.
Kveðja vigdís

Nafnlaus sagði...

Að synda yfir kaldan sjó
er skítlétt fyrir þennan fork
kappsemi getur svikið þó
ertu ekki með kút og kork?

kveðja
Sverrir

Nafnlaus sagði...

Frábært að fylgjast með þér ég trúi að þú náir þessu
kveðja
Berglind Eyjólfs

Unknown sagði...

Hæ Benni.
Frábært hjá þér. Þú ert bestur.
Sendum baráttukveðjur Svana og Siggi.

Nafnlaus sagði...

Frábært Benni! Þetta er hrikalega spennandi. Mér gengur ekkert að pakka fyrir ferðalagið okkar, er alltaf að hlaupa upp í tölvuna til að taka stöðuna. Stefnan hjá okkur er nú á Ítalíu fyrst við komumst ekki nógu snemma af stað til að taka á móti þér í Frakklandi. Gangi þér vel á lokasprettinum.
Kveðja frá Svíþjóð, Þóra