þriðjudagur, 10. júlí 2007

Og það var Benni og það var Benni ó le ó le ó leóleóle


Búinn að synda 5 klukkustundir og 40 mín. Kominn 17,5 km meðalhraði er 3,5 km á klukkustund. Tæpur helmingur eftir.
Hann er búin að færa sig frá hægri hlið bátsins yfir á vinstri til að skýla honum fyrir öldunum. Komin er sól og minnkandi öldugangur.
Eftir um 45 mín mun hann synda bringusund.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Góður Benni. Ég fylgist spenntur með hvernig gengur og mér finnst ekki ólíklegt að þú klárir á tæpum 13 tímum. Áfram Benni (kv. Steinn)

Nafnlaus sagði...

Áfram Benni,
fylgjumst með þér í fríi í Boston.
Kveðja, Óli, Berglind og krakkarnir.

Nafnlaus sagði...

Benni - Rock ON!

Palli

Nafnlaus sagði...

Í huganum er ég að taka með þér sundtökin í öldugangum og við einbeitum okkur að því að vera höfrungar. Ég veit að þú getur þetta...Koss og kveðja Sigga Ólafs

Nafnlaus sagði...

Hjartanlegar hamingjuóskir með stórafmælið og að vera lagður af stað yfir sundið... þú klárar þetta með glans! Kveðjur frá Heimi og Astrid

Nafnlaus sagði...

Fljótur .... ég sé hákarl ! :S

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel Benni og til hamingju með afmælið í gær. Sagt er að allt sé fertugum fært en sýnist að það ætti að breyta þessu í allt er fimmtugum fært.

kveðja
Íris