Hópurinn er nú í Dover og undirbúningurinn stendur sem hæst fyrir sundið á morgun. Hér eru nokkrar glænýjar myndir:
Benedikt vakinn á afmælisdaginn
Heimir og Benedikt kíkja á veðurspána


Heimir teygjir á Benedikti

Ingþór fer yfir tossalistann
Partur af búnaðinum sem fylgir með
Benedikt ræðir við móður Ermasundsins.

Benni ræður við Eddy, skipstjóra fylgdarbátsins.
7 ummæli:
Sá að þú varst kallaður frjálsíþróttamaður á ruv.is, fannst það soldið skrýtið og mundi svo að þú varðst Íslandsmeistari öldunga, var það ekki í kringlukasti? Annars væri líka hægt að bendla þig við fimleika, fótbolta, skíði, maraþonhlaup, línuskauta og sjósund (Ég er örugglega að gleyma einhverju, er það ekki?). Mömmu fannst réttast að kalla þig bara fjölíþróttamann...
Kv. Eva
Með stuðningsliðið dynjandi
og presta landsins biðjandi
Konur landsins stynjandi
Ljóðskáldin skersins hrynjandi
Vér í sjósundtríóinu eigum þá von heitasta að Ermasundið það er þú lagt hefur í verði klárað svo það verði saga hin jákvæðasta þegar þú snýrð aftur til laugar í víkinni.
Ferðbúinn á engilsaxnenskri fjörunni
Fór hann úr síðustu spjörinni
Mjakaði sér í átt að meginlandi
í marmelaði og fransbrauð syndandi
Til hamingju með afmælið
Benedikt þú átt afmæli í dag
Þig styðjum í ermasundspúli
og sendum þér aflraunabrag
Hreggviður, Hafsteinn og Skúli
Eva það mætti kannski líka bæta við að hann sé dansari, mannstu eftir múllesæfingunum. Ekki flokkast það undir fimleika?
herra nafnlaus, mér leist ekkert á setninguna konur landsins stynjandi.
kv Thelma
hahaha ert það þú sem ert Benedikt annar?
Sæll Benni.
Til hamingju með daginn aftur. Það rignir vonandi yfir þig hamingjuóskum á morgun líka.
Sendi bestu kveðjur um gott gengi frá Stefáni Hermannssyni (hann ætlaði að vera á áhöfn Benna L. en gat það ekki á síðustu stundu).
Er það ekki bara bull og vitleysa að þú ætlir að synda í 20 tíma? Ég treysti því að þú munir eftir sjóveikistöflunum.
Ég mæli ekki með að þú farir að taka upp á því að haga þér eins og Dáni í sjónum, þú veist hvað ég meina er það ekki? Ekkert vera að hlusta á heilræðin hans :-).
Ég sendi þér góða strauma á morgun.
Mínar bestu afmælis og baráttukveðjur,
Birna.
Iss, þetta er ekki Benedikt annar, þetta er Benni Hinn...tíhíhí. Það var annars mjög fín fréttin um þig í Sjónvarpinu.
Sæll Benni okkar,
Innilegar hamingjuóskir á fimmtugsafmælinu. Gangi þér vel með sundið.
Frá sundgörpum Breiðabliks og járnfólkinu
(Við sátum í kvöld í heita pottinum eftir æfingu og hugsuðum til þín)
Skrifa ummæli