Kæru vinir, vandamenn og aðrir sem hafa fylgst með þessum ótrúlega degi.
Mér þykir ótrúlega leiðinlegt að tilkynna ykkur það að þetta hafðist ekki í þetta skiptið.
Hann var mjög hrakinn og þreyttur og rak mikið til hliðar. En hann var 2,4 mílur frá þegar hann hætti.
Benedikt mun tjá sig um sundið á eftir.
29 ummæli:
Hann tekur þetta þá bara næst ... Vá hvað þetta var ótrúlega flott hjá honum og óskaðu honum innilega til hamingju með árangurinn ... ég fæ bara frakkana til að geyma hvítvínið þangað til næst að hann klárar þetta. :D
Kæri Benni. Þetta kemur bara næst. Hins vegar varstu í dag að vinna eitt mesta sjósundafrek Íslendings fyrr og síðar. Við erum öll stolt af þér. (kv. Steinn og fjölskylda).
Benni er samt hetjan mín!
É TRÚISIGGI :S
það verður þá bara næst
benni er bestur og það er eitt að þora að reyna þetta en hetjudáð að ná svona langt ég er stoltur af þér elsku vinur kv dáni
Mikið svakalega er hann flottur þessi 50 ára kappi. Bara 2,4 km eftir. Með smá heppni hefði þetta getað verið "létt" fyrir hann. Bestu kveðjur frá okkur hér í Frederick og takk fyrir alla spennuna í dag.
Hetjudáð!!
kveðja,
Helgi Hrafn
það gengur bara betur næst. En árangurinn frábær, til hamingju.
Þvílíkt afrek engu að síður og allir stoltir.
Ef þetta hefði verið líffræðilega hægt þá hefði Benni tekið það með trompi!
En það er víst til lítils að deila við náttúruöflin, jafn svekkjandi og niðurstaðan er þegar náð er svo nærri takmarkinu.
En þvílíkt afrek!
Elsku Benni, þú ert frábær. Þetta var ótrúlegt afrek. Þú ert hetja
Anna Beta og Rein.
Til hamingju með árangurinn þetta var ótrúlegt og spennandi að fylgjast með
Þetta var hrikalegt hetjuverk og svo lítið eftir..ogghhh.. takk fyrir spennuna í dag.
Þetta gengur bara betur næst og þá er reynslan lika kominn í spilið... Kveðja frá UK
Til hamingju með afrek aldarinnar.
2400 metrar er lítið á við þá 32 kílómetra sem syntir voru af milku afli og dyrfsku.
Til hamingju með glæsilegt afrek !!
Við fylgdumst spennt með. Þetta er frábært afrek. Kveðja frá UK.
Til hamingju Benni minn. Þetta var hreint út sagt ótrúlega spennandi og mikið þrekvirki. Að þola þetta volk, kulda og erfiði í allan þennan tíma er bara fyrir sannar hetjur. Næsta ár verður þú reynslunni ríkari og kemur enn sterkari inn. Kveðja Sigga Ólafs
Þetta er áfall en allt er þetta spurning um heppni, fullkomnar aðstæður og nákvæma tímasetningu. Þú ert algjör hetja.
Kveðja,
Birna.
Þetta var nú samasem komið og engin ástæða til að endurtaka leikinn - enda hetjudáðin fullkomlega framin!
Til hamingju með árangurinn, elsku Benni! Ingunn og Palli
Leitt að þetta skyldi ekki nást en frábær árangur samt. Þú mátt vera stoltur af þessu Benni minn.
kveðja
Íris
Glæsilegt hjá þér. Þú ert aðdáunarverður maður.
Samt sem áður - til hamingju. Náttúruöflin láta ekki að sér hæða. Gaman að fá að fylgjast með þessu án nokkurs prjáls eða auglýsingamennska í kringum þetta.
Hvað ætlarðu að gera þegar þú verður sextugur?
Frábær árangur Benni, til hamingju!!! Þú ert hetjan! Hlökkum til að fá þig aftur.
Kristín Sjósyndari
Valsmenn unnu sinn leik - en það er ekkert miðað við þennan stóra árangur þinn í sundinu. Hefði svo gjarnan vilja skipta á þér og þeim. Til hamingju með sundið og þetta stóra líkamlega- og andlega afrek sem það var. Þér á eftir að gefast annað tækifæri.
Kv. Rudolf
Til hamingju með þessa flottu tilraun, Benni. Ég er stolt af því að þekkja þig og hafa æft með þér. Þetta var spennandi dagur. Takk fyrir hann.
Sjáumst í sundlauginni.
Bibba
Þú ert sannkölluð hetja! Innilega til hamingju með afrekið, þú mátt sko vera stoltur- ég hefði ekki einu sinni getað synt 2,4 km í lygnum sjó!! Og þú áttir það bara eftir, vá hvað þú ert búinn að synda mikið!!!!!!!!!!
kv. Helga Rakelarvinkona
Grátlegt að þú komst ekki alla leið. Ótrúlegt afrek að komast svona langt samt. Ég er stoltur af því að vera frændi þinn. (sniff)
Kv Hjörtur
Það er leitt að þetta hafðist ekki alla leið núna Benni, en þetta var samt sem áður æðislega flott hjá þér.
Þú stóðst þig vel í sundinu og ert sannkölluð hetja!
Við hlökkum til þess að sjá þig fljótlega hressan eins og ávallt í Nauthólsvík.
Bestu kveðjur frá starfsfólki Ylstrandar
Skrifa ummæli