miðvikudagur, 11. júlí 2007

Kærar þakkir og fyrirgefið

Kæru vinir,styrktaraðilar, minir frábæru félagar sem voru í sundáhöfninni og allir sem fylgdust með Emmusundinu okkar yfir Ermasund.
Ég bið ykkur innilega afsökunar á því að hafa brugðist ykkur. Eftir að ég hef fengið útprentun á leiðinni sem við fórum og aðrar upplýsingar þá mun ég skýra nánar frá ferðinni. En alls synti ég 45 km á tæplega 15 tímum þar af einn og hálfan tíma þar sem ég komst nokkra metra áfram en marga kílómetra til hliðar.

Eftir að hafa rætt saman hér eftir sundið erum við sammála um að skipulag skipstjórans hafi farið íllilega úr skorðum. Hann var til að mynda allt of seinn að koma bátnum af stað (ekki samkvæmt áætlun) þannig misstum við af því að fara á liggjandanum (tíminn á milli flóðs og fjöru). Hann vissi ekki hvernig flóðataflan var fyrir Calais. Reiknaði þannig vitlausan tíma til að venda, breyta stefnu inn til Frakklands. Þá var skollið á hörku útflæði. Í gegnum hana fer enginn eftir 13 1/2 tíma í sjónum á miklum sjósundshraða.
Sundhraðinn frá Dover var mikill og mér leið afbragðs vel alla leið að úflæðisveggnum. Hefðum við farið á réttum tíma af stað hefði útflæðið ekki verið byrjað. Við þá sloppið inn á lygnu og klárað dæmið.
Eftir að hafa synt í einn og hálfan klukkutíma á móti þessum straumi eins og eg væri í 100m sprettsundi í keppni og bara færst fram um nokkra metra. Varð ég veikur af ofreynslu fékk hita og hætti sundi. Þar lá minn veikleiki. Ég hefði getað beðið í nokkra klukkutíma og haldið mér á svipuðum stað með ögn minni áreynslu og farið inn þegar um hægðist.
En ég hætti á "dauða" mílunni eins og hún er kölluð Því þar hætta flestir þeir sem hægsyndir eru. En tímasetningin var röng fyrir okkur.

Hér höfðum við fjóra síma á leiðinni og það er sannast sagna ótrúlegt hvað margir hringdu og sendu SMS til að spyrjast fyrir um gang mála og meira segja spyrjast fyrir um það hvort hægt væri að styrkja þetta sund. Takk æðislega, þið eruð frábær!

Eftir sundið hringdi ég í konu mína og sagði hún mér að hún hefði verið að velta fyrir sér hvernig hún gæti verðlaunað mig fyrir þetta sund. Sagðist vita hvað mér þætti gott að vera í hlýralausum bol. þannig að hún ætlar að gefa mér svoleiðis, þeir væru nefnilega "Ermalausir". Þetta Emmusund verður þá að kallast stutt Ermasund.

Nú er röðin komin að einhverjum öðrum að reyna. Ég skal aðstoða þann einstakling með öllum ráðum.

Það sem viðkomandi þarf að hafa til brunns að bera er að geta synt 100m sund á einni og hálfri mínútu sem er ekkert sundafrek og geta synt þrjá kílómetra á klukkustund í fjóra tíma. Hægt er að ná þessu á einum vetri fyrir góðan íþróttamann. Það hefur sýnt sig að þeir sem ekki geta þetta eiga engan möguleika.

Enn og aftur takk fyrir allir sem sýndu þessu Emmusundi áhuga á einn og annan hátt og fyrirgefið að ég brást ykkur.
Ykkar einlægur
Benedikt Hjartarson
reiður, sár, svekktur, og syfjaður.

16 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Benni þú stóðst þig svo vel ekkert kjaftæði.

Fjóla

Nafnlaus sagði...

Já mér sýnist að skipstjórinn hafi ekki reiknað með þessum hraða, hann hefur ætlað þér að fara inn á næsta flóði ;-)

Ok einhver að reyna næst, pant ekki ég......

Nafnlaus sagði...

Það er ekkert smá afrek að klára 45 km á tæpum 15 tímum og þú hefur ekki brugðist neinum þótt þú hafir ekki komist yfir. Þú ert án efa fremsti sjósundmaður þjóðarinnar og hefðir klárað þetta með sóma hefðu ekki komið til að útreikningar skipstjórans brugðust. (kv. Steinn)

Nafnlaus sagði...

Þú hefur engum brugðist Benni. Þetta er stórafrek og ekkert til að skammast sín fyrir!

Nafnlaus sagði...

Var fyrst til að commenta hjá ykkur í gærmorgun... vil vera fyrst til að minna þig á það að þú gerðir eins vel og þú gast...fallegast finnst mér að þú gerðir þetta í minningu litlu frænku þinnar..ekki gleyma því..hún er örugglega mjög stolt af frænda sínum... Gott fyrir Ísland að eiga góða Benna.
Gangi þér vel með afrek þín í framtíðinni...kv. Týra.

Nafnlaus sagði...

Glæsileg frammistaða,Benni.
Þú fórst lengra en blómakallinn.
Við áttum von á að þú færir alla
leið,vitandi hvaða mann þú hefur að geyma. Spurning hvort grísinn
verði ekki næstur að synda þetta.
Hann mætti alveg örmagnast á miðri
leið og sökkva.
kær kv. Steinþór

Nafnlaus sagði...

Steinþór ef þetta seinasta komment þið var ekki bara of fyndið!

Pabbi ég vil ekkert uppgjöf hérna, skil ekki hvað hefur komið fyrir þig, ef ú ert ekki sáttur þá reynir maður aftur.

Eins og með lítil börn sem eru að læra að labba, þau detta á rassinn en standa alltaf aftur upp og reyna aftur, mér finnst að þú ættir að gera hið sama :D

kv Thelma
p.s þá gætir þú líka bara framlengt afmælið þitt :D

Nafnlaus sagði...

Ekkert reiður sár svekktur syfjaður tal hér,Brostu bara allann hringinn eftir þetta afrek :D
er þá ekki bara að negla af stað í fyrramálið ? ef ekki núna þá verður þú alltaf sextugur og það ótrúlega fljótt

Svo ertu líka einn þrautseigasti maður sem ég hef kynnst ert ennþá með sömu brandarana 1980 og bíður enn eftir að fólk fatti þá (pabbi er líka svoleiðis en en með sundið :S......hann syndir ekki svona lagað nema að síðasta bjórdósin hangi í spotta fyrir framan hann) (ekki segja honum að ég hafi sagt þetta;)

Kv. Ég

Ps. Þú syndir bara flugsund alla leið til íslands ......... pabbabrandari ..... ahahahahahahahahahahahahahaha :S :D

Nafnlaus sagði...

Benni, þú ert frábær, algjör hetja, þetta var ótrúleg ferð hjá þér og við erum svo stolt af þér , ég vona að þú getir notið hennar og eins og þú sagðir, komið þekkingu þeirri sem þú hefur fengið í gegnum þetta áfram. Að berjast við náttúruöflin er engin leikur. Ástarkveðja, Anna Beta og Rein.

Nafnlaus sagði...

Þetta var bara helvíti magnað hjá þér, verst að skipstjórinn klikkaði.

Ég fylgdist spenntur með og orti um leið nokkrar vísur, eflaust er ég víðsfjarri um það hvernig upplifun þín var, en það var samt gaman að upplifa þetta með þér.
Sjá neðarlega hér:
http://limran.blog.is/blog/limran/entry/259928/

Nafnlaus sagði...

Mátt vera stoltur. Finnst þetta afrek jafnast á við marga íslandsmeistaratitla. Þú ert orðin fyrirmynd í þrautsegju.

Kveðja Hafrún valsari

Nafnlaus sagði...

Ég skil vel að þú sért svekktur, vitandi hvaða mann þú hefur að geyma, en ekki gleyma því að þetta er frábært afrek hjá þér. 45km!!!

Ég held að þetta sé eins og þú sagðir mér um daginn. Hvort þetta lukkaðist eða ekki væri ekki lengur í þínum höndum. Þú varst/ert með æfinguna, þolið, skapið og aðstoðarfólkið til að þetta gangi upp - en það er alltaf þetta óviðráðanlega sem gat hindrað þetta. Hvort sem það voru tíma- og ratlausir skipstjórar, náttúruöflin eða bæði.

Eftir situr að þú getur þetta (og það vita allir) en aðstæðurnar voru bara ekki með þér þarna.

Svo eftir stendur: Benni - Rock ON!

Palli

Nafnlaus sagði...

Þetta er þvílíkt afrek hjá þér Benni. Ég er stolt af því hvað þú komst langt!

Ekki vera svekktur. Þetta kemur hjá þér næst, ég hef enga trú á öðru.

Þú ert magnaður!

Kv. Snærún

Unknown sagði...

Heill og sæll Benni og til hamingju með þetta langa stranga sund. Við höfum ekki verið svona spennt síðan Gleðibankinn fór í Eurovision. Er ekki of snemmt að vera með "aldrei aftur" pælingar ?. Er ekki bara eðlilegt að menn taki nokkrar tilraunir ? Ég hef sjálf það markmið í sumar að ná á milli bakka í lauginni hér í garðinum og ekki ef það tekst ekki þá reyni ég bara aftur næsta sumar. Bestu kveðjur frá okkur öllum hér í USA. Mikið er gaman að þekkja svona menn eins og þig.
Kv. Björg

Nafnlaus sagði...

Sæll gamli skólafélagi, ég hef fylgst með þér eins og öll þjóðin, Ég er stoltur af þér, þú hefur staðið þig frábærlega og ert öðrum hvatning til að vinna afrek.
Mbl. Haukur Þór Hauksson

Nafnlaus sagði...

Þú hefur engum brugðist góði minn. Við vissum flest hvaða áhættuþættir voru varðandi tímasetningar og strauma í þessu sundi.
Auk þess sem þú hefur þá burði sem þarf þá hefurðu núna bætt við þig reynslu. Ég trúi ekki að þú ætlir þá ekki að reyna aftur.
Bibba