
3 klst, 45 min og 14 km komnir. Meðalhraði er 4 km á klukkustund. Matargjafir ganga hratt og örugglega. Æfingar aðstoðarmanna og Benna í Skerjafirði eru að skila sér. Aðeins meiri vindur er núna og meiri öldugangur vegna skipaumferðar. Skipstjóra og áhöfn líst vel á þetta, komast sennilega á pöbbinn :D
10 ummæli:
Matargjafir hvað! Setjið bara suðusúkkulaði á veiðistöngina svona 4 metra fyrir framan Benna og hann eltir! Bestu kveðjur :)
You go Benni!!!
kv. Fjóla í bakaríinu
Þið vitið líka ef þið missið súkkulaðið þá mun hann gráta það ævilangt, ef laust bara synda á eftir því. Hann talar enþá um milka súkkulaðið sem fór útum gluggann á hraðbraut í Austurríki fyrir 25 árum síðan.
Gott þetta Benni. Súkkulaðið ætti að gefa þér aukaorku þar sem þú ert svo mikill nammigrís :-) Hraðinn er annars góður hjá þér og greinileg að æfingarnar í lauginni eru að skila miklu.
kv. Steinn
En gaman að allt gengur vel, þekki ykkur ekki neitt en fylgist samt með af áhuga, er með í anda, og örugglega litla frænkan líka (:
Góóó Benni.
Bloggaði um ykkur í morgun og ætla að halda því áfram af og til í dag.
ÁFRAM BENNI SÝNDU HVAÐ ÞÚ GETUR ..... ÞÚ GÆTIR ÞETT-UM VETUR !
Góður tími hjá þér, þú drekkur svo einn fyrir mig þegar á pöbbinn er komið :D
Syndist þér vel
Ég spáði því að Benni fyrsti kæmist ekki yfir, en Benni annar örugglega. Helmingur af spánni hefur rætst, og seinni hlutinn ... ja seint mun ég bakka með þann hluta spárinnar.
Áfram Benni minn!!
Sjónas
Barráttukveðjur úr Breiðholtinu. Þú klárar þetta með stíl eins og þér er einum lagið.
Áfram Benni- ég veit að þú getur þetta, þú ert ekki þekktur fyrir að gefast upp!!
kv. Helga (vinkona Rakelar)
Skrifa ummæli