sunnudagur, 8. júlí 2007

Benni og bomban

Besti dagurinn sem komið hefur í Dover. Þvílikur dagur! Rétti tíminn til að setja met yfir Ermasund í hraða segja þeir sem til þekkja hér. Seigfljótandi öldur í rétta átt og golan einnig. Hitastig er með því hæsta bæði í sjó og andrúmslofti. Hiti í sjónum í Dover er 17° C og hitnar sjórinn eftir því sem nær dregur Frakklandi. Við gerðum okkur vonir um að komast af stað um fimmleytið í dag en báturinn var enn upptekin. Við stefnum á þriðjudaginn og vonumst til að fá gott veður þá. Við æfðum í dag og skoðuðum Dover. Á eftir gengum við um Folkestone og sáum Spitfire herflugvélar fljúga. Þegar við komum aftur að hótelinu var allt lokað. Sérsveitarmenn um allt, löggan, slökkviliðið og allt tiltækt lið. Þá hafði einhver sent inn sprengjuhótun og grunsamlegur pakki fannst á hótelinu. Allt vitlaust.
Nú um skeið hefur legið niðri möguleiki á að setja inn athugarsemdir nú er það komið í lag svo endilega setja eitthvað inn.
Benni

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kæri Benni
Við óskum þér alls hins besta.
Þú massar þetta fyrir okkur !!!
Járnkallinn og járnfrúin

Nafnlaus sagði...

þú ert töff og ég trúi að þetta takist hjá þér vinur uminn

Nafnlaus sagði...

hey manni ég flygist spenntur með þessu og ég vil segja þér að kindahakkið er að hækka á bíldudal hahaha en gangi þér vel og mun ég vera andlegur leiðtogi í ferðinni.ég hef fulla trú á þér vinur minn kv dáni

Nafnlaus sagði...

Sæll Benni. Ég mátti til með að bíða fram yfir miðnætti að breskum tíma en innilegar hamingjuóskir með hálfrar aldar afmælið þitt í dag 9. júlí.
Ef nafni þinn klárar sundið yfir til France þá getur þú alla vega stefnt að því að vera ELSTI Íslendingurinn sem syndir yfirErmasundið :-)
Baráttukveðja,
Birna.

Nafnlaus sagði...

Þú verður að passa að skilja ekki eftir svona grunsamlega pakka þér gæti verið hent úr landi fyrir þa og þá gærir þú þurft a' synda til ÍSLANDS........

en Þú massar þetta litla ermasund !

Kv Strákurinn

Nafnlaus sagði...

Í huganum er ég að taka með þér sundtökin í öldugangum og við einbeitum okkur að því að vera höfrungar. Ég veit að þú getur þetta...Koss og kveðja Sigga Ólafs