Skipstjórinn sagði við mig í dag að nafni verði að fá fyrsta flokks sundskilyrði annars
Nafni á að reyna klukkan 4 í nótt. Sjórinn er svo sléttur að það verður ekki betra. Sjaldan séð sléttari sjó og það alla leið til Frakklands. Spáin er alveg frábær fyrir morgundaginn. Ég er að gera mér vonir um að fara á næsta flóði eftir kl. 4 í nótt, það er klukkan kl. 17. Spáin fram eftir vikunni er nefnilega ömurleg.
Annars er hér frábært andrúmsloft. Áhöfnin mín er það besta sem
Benni
hægt er að hugsa sér. Allir svaka hressir. Mikið fíflast og hlegið. Borðað úr hófi og synt á milli. Við ræðum mikið við útlendingana sem hér eru og berum saman sundáformin. Ég bið að heilsa öllum og vil enn ýtreka þakklæti til allra sem hafa stutt okkur á einn
eða annan hátt.Benni
3 ummæli:
Frábært að vita að það er svona gaman! Tju tju tju :)
kv. Eva, Stefán og Hildur Emma (sem er farin að hjala svakalega mikið...)
Pabbi, til að auðvelda fólki að skrifa komment er hægt að fara inn í Settings og velja Comments. Þar sem stendur Who can comment? velurðu Anyone.
Kveðja,
Eva
Ég hef fylgst spenntur með þessu hjá þér og nafna þínum um helgina. Við vitum að þetta er erfitt.
Vonandi færðu bráðlega góða ferð til Frakklands í afmælisgjöf!
Þorgeir
Skrifa ummæli