Tíu mínútur í níu var allt klárt og þá var byrjað í 11°c köldum sjó. Það var virkilega gott hitastig. Fyrsti hálftíminn gekk vel en eftir það hófst erfiðið. Þá voru pottarnir orðnir fullir og yfirfallið af þeim byrjað að renna út í Nauthól. Það skal tekið fram að þeir voru settir í gang fyrr en venjulega fyrir mig til að hita aðeins lónið. Það er svo yndislega gott starfsfólkið þarna niðurfrá og alltaf til í að hjálpa. Þá gerist það að sjórinn verður í taumum heitur og kaldur. Þeir sem synda í sjónum vita að þegar farið er út í sjó verður manni kalt sem venst svo aftur þegar skrokkurinn dofnar. Við svona tauma dofnar ekkert og alltaf er eins og verið sé að fara út í. Eftir 40 mín var líðanin verulega slæm og sú hugsun ein að hætta. Eftir einn og hálfan tíma kom Stefán Karl út í og það var virkilega gaman að sjá hann og það hélt manni lengur út í en þá var kuldinn orðin það mikill að ég gat varla talað skalf svo mikið. Mikið var gott á að fá félagskap. Eftir fjórar klukkustundir var sjórinn orðin heitur 16.3 °C en samt miklir kuldataumar.
Heimir bættist við og synti nokkrum sinnum með. Góðir félagar. Nú var farið að fjara og eins og að synda í 25 metra barnalaug. Hitinn að aukast og taumarnir að minnka. Síðustu tveir tímarnit voru eins og sundlaugardútl.
Fyrstu 3 tímana fékk ég næringu á klukkutíma fresti en svo á hálftíma eftir það. Um það sá að mestu Starfsmaður Ylstrandarinnar Anna Gunndís (Dunda) og kann ég henni bestu þakkir fyrir.
Hún mætti einnig klukkustund fyrir vinnutíma sinn til að gera allt klárt fyrir mig. Hún hitamældi sjóinn á klukkutíma fresti. Heimir og konan mín sáu einnig um að fæða mig.
Eftir sex tíma í lóninu fór ég í sjóinn til að synda almennilega og var það frábært. Jafn hiti, rigning og smá öldugangur.
Mig langar að þakka öllum sem aðstoðuðu mig við þetta. Stefáni Karli, Heimi, konunni og þessu frábæra starfsfólki Ylstrandarinnar sem er alltaf til í að aðstoða og gera það sem er í þeirra valdi til að gera manni dvölina þarna niður frá sem skemmtilegasta.Bennih
2 ummæli:
Þetta var andlegt þrekvirki að synda í þessum drullupolli í 6 klst.
Frábært Benni.
Við hlökkum til að fylgjast með sundinu mikla.
Björg og co í USA.
Skrifa ummæli