mánudagur, 14. júlí 2008

Indversku stelpurnar lagðar af stað...

Hálfdán, sundmaður úr boðsundssveitinni, að spjalla við indversku stelpurnar.


Nú í morgun kl. 06.00 lagði hópur indverskra kvenna af stað í sína tilraun til að komast yfir Ermarsundið. Þær áttu 2. sundrétt og við erum næstir, þ.a.s Benedikt 3. og boðsundsveit 4. Að sjálfsögðu óskum við indverska hópnum alls velfarnaðar í sinni tilraun.

Til gamans má geta þess að þegar við sáum þær synda í fyrsta skiptið í sjónum þá heldum við að þau væru menn að synda í sjónum í búningum :)

Stefán Karl, Ásgeir, Hálfdán og Benedikt, með indverska hópnum.

sunnudagur, 13. júlí 2008

Síðustu dagar notaðir til undirbúnings


Síðustu dagar í Dover hafa farið í að undirbúa sundin hjá íslensku sundmönnunum. Búið er að fara yfir búnað og hvernig framkvæmd sundanna á að fara fram. Liðið hefur verið duglegt að æfa og haldnar hafa verið ein til tvær sjósundsæfingar á dag. Æft er i höfninni í Dover þar sem fjöldinn allur af sundmönnum héðan og þaðan úr heiminum undirbýr sig fyrir sín sund. Hitastig sjávar í höfninni er í kringum 15-17 gráður, yfirleitt heitara á morgnana og kaldara á kvöldin.

Við æfingar í gærkvöldi tókust kynni með íslenska landsliðshópnum og indverskri boðsundssveit sem samanstendur af mæðgum og einni frænku. Þeirra áætlanir ganga út á það að verða fyrsta indverska boðsundssveitin sem syndir fram og til baka. Takist þetta verður þessi glaðlegi en fámenni hópur þriggja kvenna fyrstur í heiminum til að ná sem þriggja kvenna sveit fram og til baka.

Í dag rættist fyrst úr veðrinu og fór skipstjórinn okkar með Ástrala sem átti fyrsta sundrétt af stað í morgun og lauk hann sundinu á rúmum 12 klukkustundum. Veðrið mun líklega haldast svipað næstu daga og er gert ráð fyrir að næsta boðsundssveit sem er indverska boðsundsveitin fari af stað í fyrramálið.

Ef þessar áætlanir standast má gera ráð fyrir að Benedikt Hjartarson leggi af stað á þriðjudag eða miðvikudag og boðsundsveittin fari svo í beinu framhaldi af því, allt er þetta samt háð veðrinu.

Heimir lendir í flugseinkunum

Áætlað var að seinasti meðlimur sjósundlandsliðsins, Heimir Örn, kæmi til Dover um miðjan daginn. Vegna seinkunar á flugi kemur hann ekki fyrr en seint í kvöld.



Heimir í Engeyjarsundi í Reykjavíkurhöfn.


Heimir verður þá seinasti sundmaðurinn í sjósundlandsliðinu sem skilar sér til Dover.

laugardagur, 12. júlí 2008

Minningarsund um Jón Otta

Æfingin í dag var tileinkuð minningu Jóns Otta. Jón Otti var um árabil ein helsta driffjöðurin í íslensku sjósundi og hefur nokkrum meðlimum sjósundsveitarinnar hlotnast sá heiður að synda með honum. Sjósundfélag Lögreglunnar stóð fyrir minningarsundi um Jón Otta í dag þar sem synt var frá Viðey og inn í Sundahöfn.

Beðið átekta og æft í Dover

Á meðan beðið er eftir sundréttunum okkar notum við tækifærið til að æfa. Í gær tókum við einnar klukkustundar morgun- og kvöldæfingu. Hérna eru nokkrar myndir frá því.







fimmtudagur, 10. júlí 2008

Fyrsti dagurinn í Dover

Benedikt, Hálfdán og Ásgeir byrjuðu daginn í dag kl. 10:00 á því að fara niður á höfn við Dover og syntu í sirka eina klukkustund. Við höfnina safnast saman fólk sem er að reyna við Ermarsundið. Mikil stemmning er á meðal sundmanna sem koma frá öllum heimshornum. Sumir eru að reyna í fyrsta skiptið, aðrir í allt að níunda skiptið, enn aðrir koma til hitta gamla og nýja vini. Benedikt hitti meðal annars japanska stelpu sem byrjaði á sama tíma og hann í fyrra.

Benedikt á spjalli við sundmenn.

Eftir sundsprettinn varið farið á fund með skipstjóra bátsins, Andy King. Andy virðist vera mjög metnaðarfullur og góður skipstjóri og fór vel á með honum og strákunum. Hann var þegar búinn að redda straumbreyti til að tryggja rafmagn fyrir Nokia N95 símana okkur sem leika lykilhlutverk í að hægt sé að fylgjast með sundunum í texta, myndum og síðan ekki síst GPS staðsetningu sundsins. Hann sýndi einnig strákunum sundáætlunina og er hún allt öðruvísi en hjá skipstjóranum hjá hinu félaginu í fyrra en það eru tvö félög sem fylgja sundmönnum yfir Ermarsundið. Þess má geta að við erum hjá upprunalega félaginu Channel Swimming Association .


Fylgdarbáturinn okkar.

Í Dover og á Ermarsundinu hefur verið leiðindarigning og rok. Miðað við veðurspá mun stytta upp aðfararnótt sunnudagsins. Miðað við að Benni sé með þriðja sundrétt þá eru mestar líkur að hann fari á stað á þriðjudaginn og boðsundsveitin á miðvikudaginn. Best væri að fara á stað á sunnudaginn því þá eru straumar hagstæðastir.

Boðsundssveitin kom til Dover í dag og það urðu fagnaðarfundir. Næstu daga munum við æfa vel og nota tíma til að undirbúa okkur enn betur.

Fyrir þá sem vilja nákvæmar veður og vindaspár næstu daga í Ermarsundinu þá er samansafn af slóðum hér til hægri á spássíðunni.