miðvikudagur, 9. júlí 2008

Vel heppnað kveðjuhópsund á Álftanesinu

Um fimmtán SH- ingar brugða sér í sjóinn á miðvikudagskvöld og kvöddu þannig hluta af boðsundsveitinni sem ætlar að synda yfir Ermarsund á eftir Benedikt Hjartarsyni sjósundkappa. Til gamans má geta að allir meðlimir í sveitinni eru SH-ingar.




Hér má sjá hluta af boðsundssveitinni við SH-fánann. Gaman var hversu ungu SH-ingarnir fjölmenntu á staðinn og fóru í sjóinn. Að sjálfsögðu!

Hópsund til að kveðja boðsundssveitina

Hópsund verður í kvöld klukkan 20 við golfvöllinn á Álftanesi. SH-ingar munu fjölmenna á svæðið og bregða sér í sjóinn og kveðja þannig boðsundsveitina sem ætlar að synda yfir Ermarsund á eftir Benedikt Hjartarsyni sjósundkappa. Búast má við fjölmenni.

Sjá meira á http://www.sh.is/.

Fyrstu sjósundmennirnir eru nú farnir utan, þar á meðal Benedikt Hjartarson. Það rignir nú í Dover en veðurspáin er þokkaleg fyrir helgina. Afgangurinn af liðinu fer á fimmtudag og síðasti sundmaðurinn heldur utan á sunnudaginn. Búast má við að sundmennirnir þreyti sundið eftir helgina.

mánudagur, 7. júlí 2008

Myndir frá blaðamannafundi í dag

Eru brátt að leggja í hann

Blaðamannafundur var haldinn í Nauthólsvíkinni í morgun til að kynna Ermarsundið og má þegar sjá afraksturinn á mbl.is

Benedikt Hjartarson og boðsundsveit landsliðs Íslands í sjósundi eru að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir hið metnaðarfulla íþróttaafrek að synda yfir Ermarsund og vinna þar með afrek sem Íslendingar hafa ekki gert áður.

Sundmennirnir fljúga til Englands í tveimur hollum rétt fyrir og um helgina en þeir eiga keppnisrétt dagana 10. júlí til 18. júlí. Strax og aðstæður leyfa mun Benedikt Hjartarson synda einn yfir Ermarsundið með aðstoð fylgdarbáts og synda þá frá Dover í Englandi og setja stefnuna á Calais á strönd Frakklands. Daginn eftir að hann lýkur sundi mun boðsundsveitin leggja í hann, synda yfir og aftur til baka. Hver sundmaður syndir klukkustund í senn.

Ef veður og sjólag leyfir og allt gengur að óskum ætti Benedikt að fara á stað 13. eða 14. júlí og sundið að taka 13-15 klukkustundir. Benedikt þarf að synda yfir, komast á þurrt og snúa svo við og synda út í fylgdarbátinn.

Landsliðið í sjósundi færi af stað 15. eða 16. júlí og sundið fram og til baka, England – Frakkland – England, tæki um 22 - 25 klukkustundir.

þriðjudagur, 1. júlí 2008

Lokaundirbúningur fyrir Ermarsund 2008 10. júlí - 18.júlí

Nú er Benedikt Hjartarson og Boðsundsveit landsliðs Íslands í sjósundi að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir Ermarsundið sem er metnaðarfull tilraun til að vinna íþróttaafrek sem Íslendingar hafa ekki unnið til þessa. Sjósundmennirnir eru opinbert landslið Íslands í sjósundi (Icelandic Open Water Team) og samanstendur af reyndum sjósundmönnum, fyrrverandi landsliðsmönnum í sundi og einum pólfara. Allur mannskapurinn er búinn að æfa vel í vetur og fólk farið klæja í lófana að takast á við Ermarsundið.

Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgust með fréttum á mánudaginn að sjósundkappinn Benedikt Lafleur hætti sinni þriðju tilraun við Ermarsundið eftir 10 klst. sund og var kominn hálfa leið í kílómetrum talið. Samkvæmt fylgdarmönnum hans byrjaði hann við kjöraðstæður en þegar nær dró miðjunni fór að hvessa og sjórinn að ókyrrast. Þetta sýnir að Ermarsundið er óútreiknanlegt. Til að takast á við duttlunga þess þarf að hafa góða blöndu af sundgetu, úrvalsformi, kuldaþoli og síðast en ekki síst andlegan styrk. Lafleur hefur sýnt fyrirmyndar þrautseigju, dugnað og andlegan styrk í sundtilraunum sínum. Við óskum honum velfarnaðar í komandi sundum sínum.

Til að takast á við Ermarsundið eru gríðarlegar æfingar og mikil undirbúningsvinna að baki. Koma þar að meðal annars fyrrverandi landsliðsþjálfari í sundi, fleiri þjálfarar og skipuleggjendur. Nú seinast á sunnudaginn tók boðsundsveitin ásamt Benedikt vel heppnað æfingasund, um 6 kílómetra leið í 8 stiga heitum sjó úr Hafnarfjarðarhöfn og að fyrstu bauju og til baka. Þar náðum við að æfa skiptingar og matargjafir og fengum kjörið tækifæri til að leggja lokahönd á undirbúningin sem hófst síðastliðið sumar. Undirbúningurinn hófst þegar Benedikt Hjartarsyni tókst ekki að synda yfir Ermasundið, þrátt fyrir hetjulega tilraun. Grunnhugmyndin er sú að Benedikt Hjartarson hefur fyrsta sundrétt – þ.e. er tryggður réttur til þess að gera sína aðra tilraun til að synda Ermasundið. Í kjölfarið kemur boðsundsveit Íslendinga og syndir yfir til Frakklands og aftur til Englands ef veður leyfir. Hópurinn vinnur saman sem ein heild með það að markmiði að bæði Benedikt og boðssundssveitin nái takmarkinu.

Efri röð frá vinstri: Björn Ásgeir Guðmundsson (boðsundsveit), Kristinn Magnússon (boðsundsveit), Hálfdán Freyr Örnólfsson (boðsundsveit), Heimir Örn Sveinsson (boðsundsveit), Fylkir Þorgeir Kjeld Sævarsson (boðsundsveit), Ingþór Bjarnasson (fararstjóri) og Stefán Karl Sævarsson (aðstoðarmaður og varamaður í boðsundsveit). Neðri röð frá vinstri: Sigrún Matthíasdóttir (varamaður í boðsundsveit), Hrafnkell Marinósson (boðsundssveit), Birna Jóhanna Ólafsdóttir (boðsundsveit), Hilmar Hreinsson (boðsundsveit), Benedikt Hjartarson (einstaklingsund -> Ermasund 2008) .

Keyptur var 3. og 4. sundréttur á milli 10. júlí til 18. júlí. Búið er að tryggja besta fáanlega aðstoðarfólk í Bretlandi, fylgdarbát, æfingaraðstöðu o.s.frv. Með þessu móti aukast líkurnar á því að árangur náist. Benedikt Hjartarson hefur með þrautseigju sinni og elju sannarlega unnið sér réttinn til að reyna fyrstur yfir Ermasundið og boðsundsveitin styður fyllilega við bakið á honum. Ef veður og sjólag leyfir og allt gengur að óskum ætti Benedikt að fara á stað 13. eða 14. júlí og sundið að taka 13-15 klst. Landsliðið færi á stað 15. eða 16. júlí og sundið fram og til baka tæki um 22 - 25 klst.

Á http://www.ermarsund.com/ verður hægt að fylgjast með leiðangrinum í beinni. Með hjálp ofursímans Nokia N95 frá Hátækni og fjarskiptalausnum Símans verður síðan uppfærð með texta, myndum og síðast en ekki síst verður GPS staðsetning sundsins sýnd á myndrænan hátt með nýjum nethugbúnaði frá Nokia -> Nokia Sports Tracker.

Leiðangur sem þessi er kostnaðarsamur og því hefur leiðangurinn samið um samstarf við eftirfarandi aðila:
Landsbankinn
Lyfja
Landsvirkjun
Síminn
Hátækni
Totem (Speedo)
Gámaþjónustan
EJS
Nýherji
Ellingsen
Hjálparsveit Skáta Kópavogi
Duo
66 Norður
Byko
Henson

Að lokum koma nokkrir fróðleiksmolar um Ermarsundið og meðlimi Landsliðsins:
  • Bein lína yfir Ermasundið er 32 km. Vegna strauma er meðalsundmaður sem klárar sundið að synda um 40 - 45 km.
  • Það var Captain Matthew Webb's sem synti fyrstur Ermarsundið árið 1875. Síðan þá hafa þúsundir manna reynt við það en 938 sundmenn hafa klárað einstaklingssundið (solo). Þrír Íslendingar hafa reynt við Ermarsundið án árangurs.
  • Meðaltími sundmanna er 13 klst., 16 mínútur og 15 sekúndur.
  • Meðaltími boðsundsveita er 12 klst., 10 mínútur og 28 sekúndur.
  • 67,1% af sundmönnum er karlmenn. 32,9% eru konur.
  • Meðalaldur sundmanna í Ermarsundinu er 33 ára.
  • Tveir úr hópnum, Fylkir Þorgeir Kjeld Sævarsson og Kristinn Magnússon eru þeir einu í heiminum sem hafa synt yfir Þingvallavatn.
  • Kristinn hefur einnig synt tvisvar sinnum Drangeyjarsund og er eini núlifandi Íslendingurinn sem hefur synt frá Vestmannaeyjum og í land.
  • Benedikt Hjartarson er annar Íslendinga til að synda frá Reykjavík til Hafnarfjarðar 15 km. Hann synti frá Nauthólsvík og inn í smábátahöfnina í Hafnarfirði. Það tók hann 6 klst. Áður hafði Eyjólfur sundkappi synt frá Ægissíðu og að Sundlauginni í Hafnarfirði.
  • Farastjóri hópsins, sálfræðingurinn Ingþór Bjarnason er mikill skíðagöngugarpur og hefur farið yfir Grænlandsjökul, á Suðurskautið og hálfa leiðina á Norðurskautið í frægri ferð.
  • Í 8 manna boðsundsveitinni eru allir í Sundfélagi Hafnarfjarðar.
  • Haustið 2006 tóku Heimir, Benedikt, Birna, Hilmar og Hrafnkell þátt í auglýsingu og syntu í Jökulsárlóninu. Þar slógu þau heimsmet með því fara 14 sinnum út í 0,9 gráður heita jökullónið, mest 6 mín. í einu.
  • Björn Ásgeir hefur lengstu reynslu í sjósundinu og ber t.d. ábyrgð á því að Kristinn hóf sinn sjósundferil.
  • Annar reynslubolti, Birna Jóhanna Ólafsdóttir er eina konan í boðsundsveitinni. Hún hefur synt ótal sjósund og er tvímælalaust sjósunddrottning Íslands í dag.
  • Hálfdán er sá eini sem hefur synt frá eyjunni Skrúð og í land.
  • Stefán, Sigrún, Kristinn, Hálfdán og Heimir eiga sameiginlegt að hafa æft keppnissund á sínum yngri árum.

Heimir